Ógeðfelld "frétt" eða fréttafölsun Stöðvar2, Ari Edwalds og gengisfelling nauðgana

Af gefnu tilefni, hefur eftirfarandi mótsvar við fréttafluntingi Stöðvar 2, verið send til fjölmiðla:

Þegar við þrjú sem rituðum andsvar vegna mótmælanna við Hótel Borg á gamlárskvöld, þá datt okkur aldrei til hugar, að Ari Edwald og Stöð 2 myndu bregðast við með svo ógeðfelldum hætti og varð raun. Til að útskýra með andsvarið, þá vorum við þrjú stödd við mótmælin við Borgina inn í portinu, og mótmæltum friðsamlega. Atgangurinn þar endaði eins og fólk þekkir með sprautun piparúða yfir hóp fólks, sem sumt hvert var að halda á brott. Flest okkar sem voru þar á svæðinu höfðu hvorki hugmynd um átök við starfsfólk Stöðvar 2 og flestir ekki heldur hugmynd um að að kapalsgrey hafði verið brennt í sundur né að svo ömurlega skyldi fara að meiðsl yrðu í átökum.

Í framhaldi þá hófst við mikill darraðardans þar sem allir sem voru við mótmælin, voru stimplaðir skemmdarvargar, skríll, hryðjuverkamenn og svo uppáhald okkar:“kommúnistadrullusokkur“ sem svartstakkur nokkur hefur gert að góðu grínslanguryrði.  Ekki voru það bara misvitrir bloggarar og aðrir sem ekki höfðu verið á staðnum, heldur einnig „fréttastofa“ Stöðvar 2, sem hafði ákveðið að notfæra sér mótmælin til að krydda Síldina sem var þegar orðin ónýt vegna ýldubragðs efnahagsástandsins,  í von um að það yrði metáhorf. Eftir að þeim varð ljóst að ýldulyktin hafði aðeins farið á þá eftir þessa misheppnuðu markaðstilraun, þá sigu þeir fljótt í þann ham að hefja aftur þá djöfulgeringu og einstaklega hlutdræga fréttaflutning, sem þeir hafa reynt að draga upp af mótmæla-Jóni  fyrir eiganda sinn, séra Jón Ásgeir.  Ekki nægði þeim það, heldur mætti rauðþrútinn af reiði eða þynnku, forstjóri fyrirtækisins í viðtal hjá „fréttastofunni“ á Nýársdag og krafðist í hroka valdsins, harðari aðgerðir en piparúðun á mótmælendur. Fyrir þá sem ekki vita, þá þýðir það barsmiðar með kylfum, sem myndi hafa þær afleiðingar, að mótmæli og annað, myndu færast yfir á mun harðara stig með jafnvel skelfilegum afleiðingum og nokkuð sem á að forðast.

Okkur ofbauð þessi orð Ara en vorum einnig reið og sár yfir þessum alhæfingum um þau mörg hundruð manns sem mótmæltu við Borgina. Í framhaldi af því kom upp þessi hugmynd að bjóðast til að standa að söfnun fyrir tækjabúnaði Stöðvar 2, en sú upphæð og hvað átti að hafa eyðilagst hafði verið mikið á reiki frá degi til dags. Töldum við því að best væri að fá óháðan aðila til að segja til um skaðann, enda ætti það að vera í samræmi við þá skoðun okkar að algjörlega óháður aðili myndi rannsaka bankahrunið. Um leið ákváðum við að koma gagnrýni okkar á framfæri og þeim skilaboðum að við hefðum komið í friðsamlegum tilgangi til mótmæla, ekki til að valda skaða á neinn hátt né gerðum við slíkt á nokkurn hátt.

Yfirlýsingin birtist svo hjá flestum fréttamiðlum, og í framhaldi þá hafði „fréttastofa“ Stöðvar 2 samband við einn úr hópnum og tók viðtal þar sem spurðar voru nokkrar spurningar um atriði sem komu fram í yfirlýsingunni. Einnig var spurt varðandi óþægindi starfsmanna Stöðvar 2, sem hópurinn hafði samúð og skilning með og var sagt svo. Svaramaður þessi taldi að enn væri von um að „fréttastofan“ notaði gamlar kennslubækur um heiðarlega fréttamennsku en svo var ekki raunin. Í hádegisfréttum Bylgjunnar kom berlega í ljós, lyga- og áróðursblaðamennska að hætti FOX NEWS og TASS-fréttastofunnar gilda á fullu, þegar kom að óvinum valdsins sem slíkir áróðursmiðlar studdu og/eða styðja. Einnig getur hafa spilað inn í, viðkvæmt egó prímadonnu Kryddsíldar og gagnrýnisóþolinn sál forstjórans hafi orði eitthvað viðkvæm. Í hádegisfréttum  Bylgjunnar miðvikudaginn 14. Janúar stundi fréttaþulurinn af áfergju því upp úr sér að mótmælendurnir(þ.e. við) sem eyðilögðu tæki Stöðvar 2, ætluðu að safna fé til að borga skemmdirnar. Örfá valin orð svaramanns voru nýtt, og lyginni klykkt út með forstjóranum Ara Edwald, nær því grátandi krókódílatárum yfir vonsku mótmælanda og endað á yfirgengilega melódramatískri lýsingu á ástandi starfsmanna þar sem hann líkti þeim við fórnarlömb nauðgunar.

Ekki ætlum við að rengja það að starfsmenn sem tuskuðust á við mótmælendur(eða nauðgarana í huga Ara) hafi orðið orðið skelkað og ómótt og eiga samúð og fullan stuðning skilið. Þó má ekki gleyma því að þeir sem stóðu fyrir utan og mótmæltu, urðu einnig margir hverjir fyrir áfalli þegar beitt var piparúða, og hina friðsömu sem urðu skelkaðir þegar hræddir lögreglumenn spreyjuðu af handahófi í hóp fólks og þótti sumum sem að verið væri að ýta saklausum inn í bununa um tíma. Má því fyrir það fyrsta benda „fréttamönnum“ Stöðvar 2, að það eru fleiri hliðar á atburðum en skoðun eiganda eða forstjóra. Einnig má benda þeim á að þegar aðili segist ekki hafa skaðað né ollið skaða, þá er það ekki í valdi „fréttastofu“ að fullyrða annað, án sannana og gæti það flokkast undir gróf meiðyrði.

En ummæli Ara er ei létt að svara, því þessi líkingarmynd hans um fórnarlömb nauðgunar er alveg forkastanleg. Nauðgun er einn af verstu og viðbjóðslegustu glæpum sem til er, og eru ummæli Ara ekkert annað en gengisfelling á því sálarmorði sem framið er, og einnig er einstaklega ógeðfelld athæfi það, að reyna að gera nauðgara, samnefnara við mótmælendur. Erum við alveg fokill yfir því, að vera dregin í sama dilka og slík ómenni, og ætti Ari því að sýna manndóm og biðja fórnarlömb nauðganna afsökunar sem og þá sem hann líkir við nauðgara, og segja upp starfi sínu í iðrunarskyni.

Ef ekki kemur neitt fram í átt til iðrunar af hálfu Ara eða Stöðvar 2, þá teljum við réttast, að taka upp hugmynd Ara og benda fólki á að styrkja Stigamót, Mæðrastyrksnefnd eða öðrum sem munu þurfa aðstoð í því ástandi sem hann hefur átt sinn þátt í að skapa sem „lobby-isti“ atvinnulífsins í SA og Viðskiptaráði Íslands. Eru því mótmælendur við Borgina og mótmælendur almennt auk andstæðinga nauðgana, hvattir til þess að segja upp Stöð 2 og leggja hlut ef ekki heila mánaðaráskrift í sjóð til styrktar þessum aðilum.  

En við megum ekki gleyma „fréttastofu“ Stöðvar 2 og sjáum við nú greinilega að okkar synd, var fyrst og fremst að ónáða hana frá meir spennandi hlutum heldur en mótmælendum sem eru fyrir neðan þeirra virðingu og eiga lygar og allt vont skilið. Við skulum því sjálf taka það til okkar og hætta samskiptum við þá, hvetja aðra mótmælendur og mótmælahópa sem „fréttastofan“ fyrirlítur vegna andstöðu þeirra við valdið, aðra meðmælendur andófs og andstæðinga valdsins í orði og riti til að einfaldlega að hundsa frekjulegan fréttamanninn með hrokafullar spurningar þess sem ætlar sér að niðurlægja mótmælandann. Einnig skulum við mótmælendur hætta að senda þeim fréttatilkynningar og sleppa mætingu í innantómt sófaspjall til uppfyllingar um hluti sem „fréttamennirnir“ skilja hvorteð er ekki eða telja yfir sig hafna.

Við slíkt þá myndi „fréttastofa“ Stöðvar 2 gefast meiri tími, til að sinna því sem þeir telja mun fréttnæmara í samfélaginu: líkamsrækt, lýtalækningar og auglýsingagerð fyrir önnur Baugs-fyrirtæki. Ef það gerist of leiðigjarnt og metnaður og heilindi skyldu fyrirhitta „fréttamennina“, þá bendum við þeim á að kynna sér hvernig alvöru blaðamenn starfa í öðrum löndum.

Látum við því þessu mótsvari okkar lokið við lygum og fyrirlitlegum málflutningi þar sem sálarmorð er gengisfellt. Vonandi þurfum við aldrei að ræðast við aftur og getum við ekki sagt að við séum sérlega döpur yfir því. Þau óheilindi að ljúga upp á fólk skemmdarverkum og öðru sem það hefur ekki framið, í ljósi þess að við tókum fram að við ollum engu slíku, hafa skilað því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sylvía

Stöð 2 er bara rusl

Sylvía , 15.1.2009 kl. 10:28

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Frábær pistill AK ;)

Alveg væri ég til í að fara í mission við að ná frá þeim áskrifendum

Heiða B. Heiðars, 15.1.2009 kl. 11:35

3 identicon

Vel skrifað!

Ég hef aldrei viljað eyða peningunum mínum í að fá mér áskrift af stöð 2, enda þvílík upphæð fyrir einn mánuð (nálægt 6 þús kr.) !! Alltof margar auglýsingar sem maður er að borga fyrir hjá þeim! 

En já það væri gáfulegra fyrir fólk að senda frekar peningana sína til félaga sem þurfa virkilega á þeim að halda og nýta tímann sinn frekar í eitthvað gáfulegra.

Það má t.d. bæta við að fólk ætti frekar að fá sér sjónvarp yfir adsl hjá vodafone, en þar kostar grunn pakkinn í sjónvarpinu 790 kr á mánuði og fær maður íslensku stöðvarnar með, Discovery Channel, Cartoon Network, Sky News, SVT1 og DR1. 

Jóna (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 12:16

4 identicon

Ég er að hætta með stöð 2.. .ónýt dagskrá, okurverð... og þeir ætla líka að láta mig borga aukalega fyrir auka lykil(Sem þó nær ekki stöð 2)

DoctorE (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 12:42

5 Smámynd: Þór Jóhannesson

Stöð 2 og sér í lagi Lygmundur Ernir Rúnarsson og fréttastofan eru - með öllu - vanhæfusta fréttastofa heimsbyggðarinnar. Meira að segja ríkisstjórnarsjónvarpið RÚV - með flokksdindilinn Pál Magnússon í sæti kóngsins - er ekki eins sorleg afsökun fyrir fréttastofu og þessi aðuvaldsspillingarfréttastofa á Stöð 2. Ég vona innilega að þetta fari á hausinn og Ari Edwald þurfi að var að vinna ærlega vinnu einu sinni á ævinni - þ.e.a.s. ef hann kemst nokkru sinni af atvinnuleysisbótum aftur!

Þór Jóhannesson, 15.1.2009 kl. 14:21

6 identicon

Alveg magnað hvað friðsamir mótmælendur dragast alveg óvart inn í táragasnotkun "hræddu" lögreglumannanna(sama kjaftæðið og á Hverfisgötunni). Inn í portinu rúmast vart mörg hundruð manns. Öllum þeim (nokkrir tugir) sem voru inn í portinu var fullkomlega ljóst að lögreglan var að fara að nota táragas enda búið að vara fólkið ítrekað við. Úðanum var spreyað á þá sem voru næst lögreglunni og því engin leið fyrir þá að vera að fara eitt eða neitt vegna fólksins sem var fyrir aftan. Þetta er því einfaldlega fegrun á því sem gerðist í raun og veru. Það veikir málstað ykkar að þurfa að ljúga til um staðreyndir. Þið hafið góðan málstað að verja og eigið ekki að þurfa að falsa sögur um hvað gerðist í viðskiptum við lögreglu.  Eins og sjá má á fréttamyndum frá Grikklandi og Lettlandi þá fer íslenska lögreglan mjög hóflega í valdbeitingu sinni.

Grímur Bárðdal (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 15:26

7 Smámynd: AK-72

Grímur Bárðdal, tvennt.

1. Þegar við tölum um hundruði mómtælenda, þá erum við að tala um allan hópinn niður á Borg. Allir sem þar voru, hafa verið stimplaðir hryðjuverkamenn, skemmdarvargar o.fl. Enginn greinarmunur er gerður á fólki heldur eru allir settir undir sama hatt og versti samnefnarinn notaður til að níða niður hópinn.

2. Hver maður sem staddur var þarna, sér hlutina út frá sínu sjónarhorni og ég hef aðra sýn heldur en þeir sem gjamma sem hæst um það án þess að hafa verið á staðnum. Þú greinilega varst ekki á svæðinu og bendi þér á lýsingu mína, og aðra vitnisburði sem ég sankaði að mér hér

AK-72, 15.1.2009 kl. 15:33

8 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Þeta er fljótgert.. hef  ekki haft þessa skítastöð síðan 1996 :)

Óskar Þorkelsson, 15.1.2009 kl. 17:24

9 identicon

Sammála AK 72 að öllu leyti.  Stöð 2 er óþörf og er stjórnað af eigendum (eiganda) og því eru fréttir þeirra alltaf með hagsmuni hans að leiðarljósi.  En það bætir ekkert að fá sér sjónvarp yfir adsl frá Voðafón því þar er sami eigandi !!!!

Ari (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 20:52

10 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Mæli með því að við sniðgöngum Stöð 2 - hættum að senda þeim tilkynningar og fréttir - þeir sem enn eru áskrifendur ættu að segja upp ef þeim hugnast ekki vinnuaðferðir þeirra - ég er því miður með símann minn hjá Voðafón - ætla að flytja hann eitthvað - einhverjar tillögur um heiðarleg símafyrirtæki?

Flott aðgerð hjá ykkur Agnar - ég var sjónarvottur eins og þú og sú saga sem Ari heldur fram er ekkert nema lygi. Finnst þessi grein mjög góð hjá þér - spurning um að stytta smá og skella henni í moggann?

Birgitta Jónsdóttir, 16.1.2009 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AK-72

Höfundur

AK-72
AK-72
Með óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...1212_913482
  • ...ner1_568492
  • ...rad-banner1
  • Screenshot

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 123075

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband