Tilkynning vegna afsökunarbeiðnii Stöðvar2

Fréttastofa Stöðvar 2 hefur sent frá sér tilkynningu um að ranghermt hafi verið upp á okkur mótmælendurnar sem sendum til þeirra tilkynningu fyrr í vikunni um söfnun vegna skemmda á tækjabúnaði. Hafði Stöð 2 sagt í inngangi frétta að við hefðum skemmt tækjabúnaðinn og biðst velvirðngar á því.  Einnig hefur Ari Edwalds beðist afsökunar á ummælum sínum varðandi fórnarlömb nauðgana og höfum við einnig átt smá málefnaleg skoðanaskipti við Sigmund Erni um atvikin á gamlársdag.

Við lítum því á að um mannleg mistök hafi veirð að ræða og eftirleikurinn hafi verið leiðinda misskilningur. Lítum við því á að málið sé dautt af okkar hálfu og engin eftirmáli né kali í garð fréttastofu og starfsmanna Stöðvar 2.

Hér er svo tilkynning þeirra:

"

Stóðu ekki fyrir skemmdum á tækjabúnaði

mynd
Frá mótmælunum á Hótel Borg. MYND/Anton Brink

Í frétt sem flutt var í hádegisfréttum Bylgjunnar þann 14. janúar síðastliðinn var ranghermt. Þar var sagt frá söfnun sem hópur fólks hefur boðist til hefja til að greiða fyrir skemmdir sem urðu á tækjabúnaði í Kryddsíldarmótmælunum á gamlársdag.

Í inngangi fréttarinnar var sagt að fólkið sem hafi boðist til að safna upp í skemmdirnar hafi einnig framið þær. Það mun ekki vera rétt heldur tók fólkið þátt í mótmælunum með friðsömum hætti.

Fréttastofa biðst velvirðingar á þessu."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Glæsilegt! Kannski er þeim ekki alls varnað.

Björgvin R. Leifsson, 16.1.2009 kl. 15:00

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Flott.

Engum er alls varnað - og þó gæti nefnt nokkra sjórnmálamenn en sleppi því að sinni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.1.2009 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AK-72

Höfundur

AK-72
AK-72
Með óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...1212_913482
  • ...ner1_568492
  • ...rad-banner1
  • Screenshot

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 123077

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband