Níð Skúla Skúlasonar í garð múslima

Eitt heitasta umræðuefni á Moggablogginu þessa daganna, er lokun á því sem ég kalla hatursáróðurs-blogg Skúla Skúlasonar. Þessi lokun hefur ekki komið mér á óvart en ég furða mig á því hvers vegna þessu var ekki lokað á sama tíma og nasistabloggið síðastliðð haust. Ég hef aðeins verið að blanda mér í umræður um það í dag og meðal annars á bloggi Einars Einarssonar í Landsambandi Ungra Frjálslyndra. Þar lét ég efti mér ummæli um hatursáróðurinn sem Skúli iðkaði og Skúli Skúlason fannst hann þurfa að svara mér með eftirfarandi ummælum:

"

Góðan daginn AK-72,

Þú ert að misskilja prestinn, þetta sagði hann orðrétt: ,,Enda væri á henni efni sem ,,samræmdist að öllu líkindum
ekki íslenskum lögu
m" og væri meiðandi fyrir minnihlutahóp í samfélaginu sem
ætti ekki auðvelt að halda uppi vörnum."

Þú segir hins vegar fullum fetum: ,,Hatursáróður eins og Skúli iðkaði, er bannaður samkv. lögum."   Mér sýnist vera mikill munur milli fullyrðingar þinnar og þess sem presturinn sagði.

Það varðar líka við lög að þegja yfir vitneskju um samsæri og stefnu hóps fólks til að drepa Íslendinga, sbr. Kóran 009:005  og 008:039 svo aðeins tvær málsgreinar séu nefndar.  Það geturðu séð  í hinum almennu íslensku Hegningarlögum.  Og meir að segja bent á það hér í færslum að ofan.  Það getur einnig varðað við sömu lög að þagga niður í þeim sem varar alþjóð við slíkum fyrirætlunum.

Nasistabloggið sem þú talar um  skaparinn.com  er í fullum gangi ennþá að því er ég best veit og skoðaði það síðast.

Það er nú ekki stórmannlegt af þér að vera hér með stóryrði og digurbarkalegar fullyrðingar og þora ekki að gera það undir fullu nafni."

Þessi feitletruðu ummæli Skúla sýna ágætlega þann hatursáróður sem hann boðaði og mér blöskraði hvað hann er að segja þarna. Hann er að gefa í skyn sterklega að það sé ætlun múslma að drepa Íslendinga og stefna þeirra og ef þetta flokkast ekki undir níð, þá veit ég ekki hvað.

Þegar maður les svo öfgafull komment sumra sem verja Skúla, er það furða að maður sé ekki að skrifa undir fullu nafni þó. Ég er ekki viss um að ég kærði mig um að eiga á hættu að fá þá öfgafyllstu í heimsókn með heykvíslarnar sínar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geimveran

Kóraninn 8:39 hljóðar svo á ensku (er ekki með íslenska útgáfu):

And fight them on until there is no more tumult or oppression, and there prevail justice and faith in Allah altogether and everywhere; but if they cease, verily Allah doth see all that they do.

Ef þessi tilvitnun merkir að múslimar ætli sér að drepa Íslendinga hvað er þá verið að segja um Íslendinga ? Að þeir séu kúgarar og æsingamenn ? Þarna er í það minnsta verið að tala um að berjast gegn kúgun og glundroða. 

Og hvor aðilanum ætli maður hefði þá samúð með í þessum "fictional" bardaga ?

Geimveran, 20.4.2008 kl. 14:25

2 Smámynd: AK-72

Jæja, ég svaraði nú Skúla sem hafði ákveðið að hjóla í mig og kalla mig huglausan einfeldning og allt eftir því. Ætla að geyma þetta komment hér einnig, ef þessir svokölluðu "verjendur" málfrelsins, skyldu taka upp á að eyða því vegna þess að það hentar þeirra málstað ekki. Það yrði nefnilega ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerðist:)

Jæja, Skúli, þá er komið að því að svara þér og ég vona að einfaldleiki og hugleysi mitt geri þig ekki svefnlausan.

Við skulum byrja á þessu sem ég tiltók með prestana og barnaníð, það var dæmi sem sett var fram til að sýna hvernig maður getur gert áróður og framkvæmt eins og þú hefurástundað á blogginu þinu þar sem þú tiltekur dæmi úr Kóraninum og svo birtir í tengslum við hryðjuverk eða annan ófögnuð. Þetta er einfalt trix og margnotað í hatursáróðri sem auðvelt er að finna á netinu, sérstaklega með tilliti til sögunnar. Ég ætla mér því að bera þetta saman við sem þú kommenterar hér með Kóran-versin við hina mestu illsku sem við þekkjum öll og köllum nasismann. 

Juliu Streicher sem var einn af áróðursmeisturum nasista, gaf út blað að nafni Der Sturmer. Í leiðara hjá því blaði stuttu eftir valdatöku nasista má finna þetta þar sem vitnað er í Talmudinn sem dæmi um illsku gyðinga:

"

1. The Annihilation of Other Peoples

"You must destroy all the peoples of the earth, having no pity on them." (Deuteronomy 7:16, etc.).

2. Theft and Robbery

"The riches of the seas will fall to you, Judah, as will the goods of all the peoples..... You will have great and beautiful cities that you did not build and houses full of goods that you did not make. You will have vineyards and olive orchards that you did not plant, and you will eat of them" (Deuteronomy 6, etc).

3. Mass Murder

"And when the Lord your God has delivered them over to you and you have defeated them, then you must destroy them totally: men and women and children, even the animals. You must not make peace with them nor show pity." (Deuteronomy 7:2.)"

Ef við berum saman við veersin úr Kóraninum sem mín ágæta systir var svo elskuleg að finna fyrir mig á ensku þá  má sjá að þetta trix sem Der Sturmer beitir hér að ofan, passar ágætlega við:

" But when the forbidden months are past, then fight and slay the Pagans wherever ye find them, an seize them, beleaguer them, and lie in wait for them in every stratagem (of war); but if they repent, and establish regular prayers and practise regular charity, then open the way for them: for Allah is Oft-forgiving, Most Merciful. "

og seinna:

"And fight them on until there is no more tumult or oppression, and there prevail justice and faith in Allah altogether and everywhere; but if they cease, verily Allah doth see all that they do. " 

Reyndar mætti segja að fyrir utan það að þú ert að gefa í skyn Risa-samsæri Múslima um að myrða Íslendinga, þá ertu einnig að segja að Íslendingar séu að kúga þá, það er nú talað um kúgun(oppression) í seinna versinu. Gætirðu kannski útskýrt bæði þetta risa-samsæri og kúgun Íslendinga nánar fyrir einfeldningnum mér?

Ótal fleiri dæmi má finna úr áróðri nasista þar sem þessi taktík er notuð og einnig það að fjalla eingöngu um illsku gyðinga en þar er oft talað um bolshévismann og Sovét sem þeirra sköpun ásamt alheimssamsæri Zionista, líkt og í greininni í Der Sturmer. Í þínum áróðri þá voru hryðjuverkin hin mikla illska ásamt öðrum hlutum sem þú tiltekru, til að reyna að sannfæra fólk um að múslimar séu hinn illi óvinur. 

Síðan getum við einnig tekið á þessari taktík að við sem mótmælum þessum áróðri séum að láta plata okkur með góðri hugsun eða við séum einfeldningar, pólitísk rétthugsandi og allir þeir frasar sem hent er fram. Ég hafði nú lesið þessa ræðu þegar ég var að grufal í áróðri nasista fyrir nokkru síðan. Í þessari ræðu er veirð að undirbúa þýsku þjóðina fyrir Lokalausinan á gyðingavandamálinu og þar segir Göbbels eftirfarandi:

"That is the way it normally begins. The Jews in England are reacting in the usual ways. First they look injured and unjustly persecuted. In the synagogues, the rabbis encourage people to be more careful in public, and to avoid provocative behavior. Then they rent a few respected, but buyable leaders from society, business or religious life to make their case. Their well-paid job is to condemn anti-Semitism as a cultural disgrace that is the result of enemy propaganda. They call for stronger laws against it. The poor Jews whine in public about everything they have done for the country, what wonderful and patriotic citizens they have always been and will continue to be, the important offices they hold, etc. The innocent citizen is persuaded by a flood of words that he must have been mistaken in always seeing Jews behind all major political or economic crimes. Soon they find some high church leader who is ready to condemn anti-Semitism as anti-Christian. By the end, not the Jews, but their enemies are responsible for every national misfortune. Then the game starts all over again."  

Og svona já, með þetta blogg, það varð til umræðu á Moggablogginu þegar það spratt upp, man ekki hvað það kallaði sig en held nú að einhverjir hafi fjallað um það af hneykslun og talið það þarft að loka því. Örugglega hægt að finna færslu hjá Stebba Fr. um það.

AK-72, 20.4.2008 kl. 18:12

3 Smámynd: AK-72

Fyrir það fyrsta þá dýrka nýnasistar Hitler sem Guð sinn og herra.

Í öðru lagi er þetta bull röksemdarfærsla hjá þer fyrir utan það að það er rétt hjá þér margir fela sig á bak við trúarbrögð til að afsaka hegðun sína, en eins og þú segir FELA SIG, því trúarbrögðin eru þeim ekki ofarlega í huga heldur er það illskan sem býr innra með þeim

Og í þriðja lagi þá mundi ég ekki verja nýnasista frekar en Skúla eða öfgamúslima, enda koma þeir af sama meiði og eru með sama áróður. Það sem ég ver aftur á móti og berst af hörku gegn er þessi gegndarlausi hatursáróður þessa daganna, sem dynur gegn minnihlutahópum í þeim eina tilgangi að demonisera þá. 

AK-72, 22.4.2008 kl. 18:33

4 Smámynd: AK-72

Ég hef aldrei varið öfgamúslima né mun slíka verja, þeir eru af sama tagi og Skúli. Ég aftur á móti ver þann mikla meirihluta múslmia sem aðhyllist ekki öfga en þarf að þola þvílíkar árásir m.a. hér á blog.is, af hatursfullum öfgamönnum sem gera hvað sem er til að hæða spotta og demonisera minnihlutahópa.

Þá kemur að því seinna sem er ansi gildishlaðið og án nokkurs rökstuðnigns. Fyrir það fyrsta þá er Frjálslnydi flokkurinn sem stendur að mestu ef ekki öllu leyti af hvítum Íslendingum og góður hluti krisitnn en allt þetta flokkast undir þann ríkjandi meirihluta hér á landi. Í öðru lagi hvar hef ég komið með hatursáróður gegn Frjálslyndum? Og svo fyrir það þriðja, þá er margt ágætt fólk í Frjálslyndum en aftur á móti hugnast mér engan veginn ekki öfgamennirnir þar líkt og hjá múslimum, og á þeim berst ég á móti ásamt rasistalýðnum sem telur sig finna hljómgrunn fyrir fordóma sína þar.

Þú gafst mér annars hugmynd, meira um það síðar. 

AK-72, 22.4.2008 kl. 19:56

5 Smámynd: AK-72

Annars hvað finnst þér um þessi orð Skúla sem ég vitna til þarna, Elías? Og hvað finnst þér þegar þú berð saman við áróður nasista í garð gyðinga þar sem þeir notuðu vers úr Talmudinum?

AK-72, 22.4.2008 kl. 20:13

6 Smámynd: AK-72

Fyrir það fyrsta Elías minn, þá á ég nú erfitt með að trúa því að þú sért kristinn með Damien sjálfan sem "avatar"-mynd.

Í öðru lagi þá bað ég þig um að benda mér á hvar ég hefði verið með hatursáróður gegn Frjálslyndum sem þú fullyritr svo, en þú getur ekki komið með dæmin sjálfur. Þarna ber þér að sanna það.

Í þriðja lagi, þá get ég ekki tekið undir þær röksemdir þínar að meirihluti múslima blessi hryðjuverk eða aftökur á samkynhneigðum og tel þessa röksemd algjört bull. Múslimar í ríkjum þar sem öfgamenn og einræðisherrar ráða ríkjum eiga lítið vall um hver lögin hjá þeim eru og flest allir sem þar lifa eru venjulegt fólk og gott, líkt og hér á Íslandi.

Í fjórða lagi þá bíð ég enn eftir svari við hvað þér finnst um þessi ummæli Skúla og einnig þegar þau eru borin saman við áróður nasista.

Í fimmta lagi, þá benti ég á að margir ef ekki allir sem í Frjálslynda flokknum eru flokkast undir þann hluta sem telst til meirihluta hér á landi. Spurningar þínar eru því eingöngu útúrsnúningar til að afvegaleiða umræðuna sem þú forðast, þ.e. ummæli Skúla og níð hans. Hvaða skoðun hefur þú á þeim?

AK-72, 22.4.2008 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AK-72

Höfundur

AK-72
AK-72
Með óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...1212_913482
  • ...ner1_568492
  • ...rad-banner1
  • Screenshot

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 123130

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband