Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Magma-leiksýning fáránleikans í Hringleikahúsi REI-hópsins

Í dag ákvað ég að skjótast fyrr úr vinnuni til að ná leiksýningu sem sett var á svið af REI-leikhópnum fræga í Hringleikahúsinu við Tjörnina. Kallaðist sýningin Magma mín-auðlindargjafarblús í D-moll og í henni átti að koma fram aragrúi af þekktum stjörnum á borð við útrásarvíkinga, S-hóp, heimspeking frjálshyggjunnar dr. Hannes og aðra frægar stjörnur sem kætt landann af svo miklum fögnuði að efnahagskerfið hrundi. Söguþráðurinn gekk út á súrrealíska sirkussýningu þar sem hópur strengjabrúða frjálshyggjunnar með 30 silfurpeninga í stað sálar, áttu að koma auðlindakjötbita í kjaft hrægamma og hýena sem ráfuðu um í skugganum og kipptu í strengjabrúður sínar. Til mótvægis voru þarna til staðar hinir sjö samuraiar sem áttu að segja NEI!NEI!NEI! í hálfvonlausri fyrirfram ákveðinni baráttu.

Ég reyndar var aðeins seinn fyrir þannig að ég kom inn í mitt upphafsatriðið þar sem fýlulegur gargari blés út úr sér froðukenndum sápukúlufrösum frjálshyggjunnar og  hver léleg lygin fauk á fætur annari. Áhorfendum var lítið skemmti yfir þessu atriði, einkum vegna ósannfærandi ofleiks og innihaldsleysis prímadonnu verksins, og létu því í ljós megna óánægju sína sem prímadonnan fúla átti skilið og henni til mikils pirrings, enda hélt hún að viðbrögðin yrðu mun betri við þessu verki sem hafði í fyrri uppfærslu heitið REI-kurrinn mikli eða hvernig við dvergarnir sex ætluðum að stinga oddvita okkur í bakið en fengum rýtingasett sjálf í bakið.

Eftir smá rokkaðan söng frá hópi samurai-anna sjö sem vakti bærilega hrifningu áhorfenda sem þótti ýmislegt í textanum eins og talað úr hjarta sínu, þá átti að koma fram aðalatriði sýningarinnar eða S-hópurinn með Finn Ingólfs nokkurn í fararbroddi. Spennan var því einstaklega rafmögnuð orðin þegar salurinn var myrkvaður og tjöldin dregin frá við söngpúlt andskotans undir tilkynningarsöng forsetabrúðarinnar:"Og héééér er FINNUR!"

En nei, ekki stóð Finnur þarna með strengjasveit sinni S-hópurinn, heldur var þar eingöngu ódýr eftirlíking sem söng söngva Finns líkt og léleg útgáfa af Geir Ólafs að taka Frank Sinatra á hátíðarstundum. Út úr honum dundi falskur Einkavinavæðingarsöngur Finns en flestir ættu að kannast við viðlagið:

"Ekki benda á mig, sagði Framsóknarmaðurinn.

Þetta kvöld var ég að ræna almannasjóði,

spurðu þá sem ekki voru hér,

ég ábyrgist að smjörklípan lendir þar."

Við þessa svik og pretti brugðust áhorfendur mjög reiðir við enda vörusvik í besta falli og landráð í versta dúr. Hrópuðu þeir ótt og títt:"Hvar er Finnur? Finnum Finn!" og skimuðu um allt en sáu hann ei leynast í skugganum glottandi yfir þessum hrekk sínum. Loks varð einum áhorfenda nóg boðið yfir þeim ögurlegheitum sem í þessum einstaklega falska söng fólst og kastaði hann því krónu á sviðið til að reyna að kaupa þögn í blæðandi eyru áhorfenda. Ekki gekk það né þagnaði þessi forsöngvari fjandans þrátt fyrir örvæntingarfyllri og hærri boð þeirra sem í stúku sáttu og hrökkluðust einstaka jafnvel í burtu, hálfgrátandi og miður sín upp á slysavarðastofu til að láta gera að eyrnaskaðanum.

Þegar eftirherman illræmda lét loks sviðið eftir, þá reyndu hinir sjö samuraiar að koma fram mótbárum og hafa áhrif á heila og heyrnarlausar strengjabrúður sem sumar hverjar voru sendar upp til að fara með „Ekki benda á mig, allir aðrir bera ábyrgð"-sönginn sem kunnur er frá þessum brúðukór og þykir einstaklega heimskulegur og illa saminn. Gerði það áhorfendur enn reiðari og sárari yfir þeim drottinsvikum sem þessi leikhópur framkvæmdi gegn þeim og öðrum þeim sem þurfa að greiða fyrir uppsetningu í allt að 130 ár(með sérstökum 9,3 milljarða aðgöngumiða fyrir leikhúseigendur).

Var því orðið frekar reitt, pirrað og sárt andrúmsloft þegar prímadonna steig digurbarkalega á ný upp á sviðið í lokasöng sem leiddi til endi þessa mikla harmleiks í söngleikjaformi.  Einstaka áhorfenda sem ekki vissi betur, dreymdi í smástund að út um gribbulegan munn kæmi jákvæður söngur sem gæfi von um farsælan endi. Sú von hvar um leið og prímadonnan glotti illkvittnislega að áhorfendum og hóf upp sinn frægasta og leiðinlegasta söng sem reglulega er sunginn af laglausum stuttbuxnadrengjum í ránsferðum:"Bendum bara á Samfó, það eru okkar einu rök."

Galaði hún og gargaði af svo mikilli innlifun hrokans og ákefð að hægðir sínar missti hún í brækur og til hliðar gekk hún með saurslóðina á eftir sér, fullviss um ofurframmistöðu sem nísti sálir áhorfenda inn að beini. Svo reyndist ekki fara enda voru áhorfendur einfaldlega í losti yfir frammistöðunni og hinni ógeðfelldu,s viksömu sýningu sem í hroða sínum slæi út stanslausa sýningu á Anti-Christ Lars Von Triers, með áhorfandann læstan til 65-130 ára í A clockwork orange-hjálminum fræga.

Lokasenan rann upp þar sem hinir sjö örvæntingafullu samurai-ar hrópuðu Nei-nei-nei! Á meðan strengjabrúðurnar kölluðu Já-Já-Já þegar kippt var í spotta af brúðumeisturum úr Magma, Capacent Glacier, Valhallar-kórnum og strengjasveit S-hópsins. Áhorfendur voru þá búnir að fá nóg, hrópuðu réttilega að strengjabrúðurnar væru að svíkja þá sem borguðu fyrir „show"-ið og voru búnir að fá nóg þegar kippt var fast í Gísla, brúðuna glaðlyndu sem hafði verið límdur fastur við Fésbókar-uppfærslur.

Þessi hræðilega sirkussýning andskotans endaði svo með því að prímadonnan stóð upp og byrjaði að benda til áhorfenda í valkvæðni með sömu einbeittu kuldalegheitum og þeir böðlar sem velja hvort menn lifi eða deyi í vinnubúðum einræðisríkja. Féllu fingur hennar á drengi nokkrum sem hafði séð aumur á henni og fært henni salernisrúllu til skeiningar. Skipti þá engum togum að þrír einkennisklæddir útkastarar og dyraverðir valdsins gripu drengstaulann og kunningja hans tvo sem ekki voru sáttir við að þurfa að borga gjaldið mikla fyrir svona lélega sýningu. Voru þeir keyrðir niður og reykspóluðu svo inn hluti af sérpantaðri stormsveit sem beðið hafði verið um sem gestaleikarar, í óaðfinnanlegum gæsagangstakti til aðstoðar dyravörðum valdsins.

Leikararnir flestir kvöddu þá sviðið, sumir glottandi og glaðir yfir því að hafa blekkt áhorfendur svo vel á meðan einstaka stóð eftir til að fylgjast með viðbrögðum áhorfenda sem létu í sér heyra reiðina sem best var lýst í orðum gamals öryrkja sem stóð þar hokinn með hækju sína og hrópaði sannleikann sára til lélegra strengjabrúðna sem eftir stóðu:" Þið ættuð að skammast ykkar!"

Því hélt maður út frekar dapur, reiður og sár eftir þessa hörmungasýningu sem kostað hefur alla þá sem á horfðu, alla þá sem leikendum greiddu og alla þá sem í uppsetningu áttu: yfirráð auðlinda til 65-130 ára að viðbættu 9,3 milljarða króna tapi leikhópsins á uppsetningunni. Þó var reynt að draga úr tapinu með því að segja að í staðinn fengjust 30 milljónir á ári í svokallað auðlindagjald þó við mættum ekki nota sjálf auðlindirnar í jafnlangan tíma og hefur liðið frá stofnun lýðveldisins.

Lokadómur er því á þessu verki að sjaldan hafa slíkar hörmungar sést hvort sem það var handrit eða leikstjórn. Leikhópurinn óheyrilega falskur og augljóslega fjarstýrt meirihlutameginn. Minnihluti leikhópsins átti þó góða spretti og virkaði á köflum að hann væri einlægur en náði þó ekki tilætluðum árangri. Uppsetning, leiktjöld og sviðsetning augljós og illa gerð með geigvænlegu tapi sem gæti kostað framleiðendur og áhorfendur alla framtíð og von í auðlindalausu landi fyrirtækjaræðis.

Vonandi verður þessi leikhópur  frjálshyggjunnar og leiksýning spillingar lögð niður um alla tíð, öðrum sem sársaukafullt víti til varnaðar.


mbl.is Sala í HS Orku samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opið bréf til borgarfulltrúa vegna Magma-samnings

Eftirfarandi bréf var sent á alla borgarfulltrúa:

"Til borgarfulltrúa allra þó þessu sé sérstaklega beint til borgarfulltrúa meirihlutans,

Nú verður tekið fyrir á borgarstjórnarfundi mál sem er eitt hið mikilvægasta sem sést hefur í hugum margra. Á þessum fundi eruð þið nefnilega að taka þá ákvörðun um hvort þið ætlið að afhenda eigur almennings í hendur erlends skuggafyrirtækis sem enginn veit raunverulega hver á og rekið er af mönnum sem virðast eiga margt sameiginlegt með Gordon Gekko, þegar ráðgast er við herra Google.

Ég ætla því að reyna að höfða til skynsemi ykkar allra í þeirri von að flokksgleraugu verði lögð til hliðar og hugsað verði umi, ekki bara hagsmuni Reykvíkingana  sem greiða ykkur launin heldur þjóðarinnar allrar . Ég ætla því að benda ykkur á nokkur atriði samningsins til umhugsunar:

  • Magma notar eignalaust skúffufyrirtæki fyrir viðskiptin. Það er ákveðin vísbending um 2007 hugsunarhátt ósvífinna og samviskulausra þrjóta viðskiptalífsins og við hverju má búast.
  • Engar raunverulegar eignir eru fyrir þessum viðskiptum, aðeins veð í hlutabréfum og hrunið hefur kennt flestum Íslendingum að slíkt er jafn nothæft og að nota sandpappír í stað skeinispappírs. 
  • Samningurinn inniheldur í sér vexti upp á 1,5% af kúluláni til 7 ára. Bandaríkin sem fá hæstu lánshæfiseinkunn fá samkvæmt Bloomberg, best 3% lán. Þetta bendir augljóslega til að þetta sé brunaútsala og verið sé að afhenda þetta fyrirtæki sem ekkert er vitað um, gerir þetta enn vafasamra.
  • Á sama tíma er verið að greiða 4,5% vexti af láni vegna kaupa á sömu hlutabréfum og það verðtryggt.
  • Ákveðinn blekkingarleikur er settur fram með verðið þar sem lánið er í dollurum en er reiknað yfir í krónur. Miðað við það sem komið hefur fram þá má reikna með að ef og í raun þegar krónan hækkar, þá muni enn minna koma til almennings en reynt er að halda fram. Gengisáhættan og óljóst hjal um álverðstengingu að hluta gefur enga skýra mynd, heldur vekur upp einstakan vafa um ábata.
  • Samkvæmt útreikningum sem ég hef undir höndum og fleiri hafa séð frá hlutlausum aðila, þá er tap OR af þessum samning 9,4 milljarðar sem er ívið hærri tölur en kom fram hjá Samfylkingunni. Það fellur allt á almenning í raun því OR þarf að hækka verð til að ná því tapi inn og nóg skuldar OR fyrir þó þetta fé bætist ekki við. Hverjir borga svo það tap? Ekki þið sem á okkur nærist, aðeins við sem tilheyrum þeim undirmálslýð sem þið teljið eingöngu mjólkurkýr og kallast almenningur.
  • Með því að samþykkja þennan samning eruð þið meðsek í því að afhenda auðlindirnar í hendur einkaaðila í 65-130 ár, nokkuð sem þið hafið ekki siðferðislegan rétt að gera.

Nú veit ég ekki hvort verið sé að þrýsta á ykkur af áhrifamönnum úr viðskiptalífinu, hvort liðkað hafi verið með kaupunum með greiðslum undir borðum í reykfylltum bakherbergjum flokksklíkna eða hvort aðilar tengdir ykkur séuð að græða á þessu persónulega en eitt veit ég þó, að samningurinn er hroðalegur miðað við allt sem fram er komið. Þegar miðað er svo við atganginn og laumuspilið með kaup Magma frá upphafi, þá virðist þarna vera á ferð nýtt REI-mál miðað við að þarna sjást flestir af sömu leikendum eða verra. Sá orðrómur gengur nefnilega um að þið séuð í raun að fara að hleypa S-hóp, Bjarna Ármanns eða öðrum slíkum vörgum sem í raun standa á bak við Magma, til að rífa enn meiri sár á sálu þjóðarinnar og stefna framtíð hennar enn meir í átt til myrkurs vonleysis og kannski reglulegs rafmagnsleysis.

Slíkar gjörðir hafið þið ekkert vald til, það vald ber ykkur ekki því að auðlindir þjóðarinnar og nýtingarréttur er landsmanna allra að ákveða um. Það vald er ekki á færi smákónga sem hafa sett heilt sveitarfélag á hausinn eða stjórnmálaafla sem virðast ekkert hafa lært af REI-málum, hruninu og öðrum djöfulskap þeirra sem hafa aðeins aur í hjarta og blindaða af glýju gullgrafarans sem einskis svífst. Það er ekki heldur í valdi borgar-, bæjar- og sveitastjórna að taka svona afdrífaríkar ákvarðanir sem varða hagsmuni og lífsgæði komandi kynslóða í landinu án þess að um það ríki í samfélaginu þverpólitísk sátt og almennur vilji til þess. Ekki hefur ykkur verið veitt neitt slíkt umboð til þess af hálfu þjóðarinnar fyrir hrun og hvað þá eftir, ekki hefur ykkur verið veitt slíkt umboð til þess að vera með bruna-útsölur kortér í kosningar, ekkert umboð hafið þið til að taka svona ákvörðun án almennrar umræðu í samfélaginu.

Ég æski þess því að þið horfið ekki lengur á hlutina með flokksgleraugum lituðum hagsmunum klíkubræðra, heldur horfið og hugsið út frá því sem þið voruð ráðin til og hafnið þessum samning. Ef þetta sé svona glæstur samningur þá skuluð þið bjóða ríkinu að kaupa þetta á sömu kjörum eða það sem best væri að einfaldlega gefa Reykvíkingum eða landsmönnum öllum hlut í HS Orku svo það haldist í almannaeign. Fyrir slíkt geta margir þolað smá hækkun á rafmagnsverði, vitandi það að það fé fer til samfélagsins en ekki misjafnra manna af því tagi sem sett hafa þjóðina á hausinn.

 Ef skynsemin til að segja nei við þessum samning, er ekki á færi ykkar þá skuluð þið líta á þetta sem uppsagnarbréf um leið því ekki vill ég hafa slíka starfsmenn á launum, starfsmenn sem hugsa ekki um hag minn heldur gefa eigur minna og annarra með stórfelldum skaða fyrir alla eigendur. Ég vænti þess svo að þið látið ykkur þá hverfa í gleymsku sögunnar ásamt þeim viðeigandi minnisvarða sem ritaður verður í þessum dúr:"Engin verk gjörðu þau af viti heldur létu af hendi í misyndismanna veski, það eina sem þau ekki máttu: framtíðina og vonina sem í auðlindunum fólst."

Kveðja,

Agnar Kr. Þorsteinsson

P.S. Það skal tekið fram að ef svör berast þá verða þau birt opinberlega en eina gilda svarið í raun, er NEI við Magma-samning þriðjudaginn 15. september."

 Smá beiðni til allra sem vettlingi geta valdið. Ef þið viljið láta óánægju ykkar í ljós eða viljið sýna að ykkur standi ekki á sama, mætið þá á pallana á mrogun eða sendið tölvupósta, hrngið eða faxið í borgarfulltrúa áður til að láta skoðun ykkar í ljós.  

 


Magmalof Moggans og útreikningar vegna Magma-samnings OR

Sumar fréttir fær mann til þess að klóra sér í hausnum og sumar þá sérstaklega, þ.e. "fréttir" sem eru í raun einhliða kranablaðamennska settar fram til að verja ákveðinn aðila. Um það má segja þegar litið er yfir þessa áróðursfrétt Morgunblaðsins sem síðustu daga hefur breytt haus sínum í Magma-blaðið þegar kemur að því einkafyrirtæki sem er að ná yfirráðum yfir auðlindum þjóðarinnar á Suðurnesjum. Í þessari grein er greinilega eingöngu notast við gögn OR sem er stjórnað af REI-flokkunum í borginni og viðmælandinn er aðeins einn: forstjóri OR sem var ansi nátengdur REI-málinu og reynt að fegra málið eða þæfa það líkt og tekst sumpart í þessari grein þar sem ekki er reynt að skýra hlutina þannig að almennur lesandi geti gert sér grein fyrir hlutunum. Nei, flækjustig viðskipta-orðtaka og annars slíks sem notað var til að rugla fólk í feluleik bankanna og engir upplýsandi útreikningar settir fram um hvort þetta sé gróði/tap fyrir Reykvíkinga, nokkuð sem ég birti hér síðar í þessari ádrepu allri.

Við vitum svo sem og höfum alltaf vitað að afstaða Morgunblaðsins ræðst fyrst og fremst af hagsmunum Sjálfstæðisflokksins og ákveðinna auðmanna sem þeim eru þóknanlegir, og slikt eins og venjulega virðist eiga við nú. Þetta hófst fyrir helgi með lofgjörð fyrir helgi um Magma sem var eins og klippt frá 2002 úr Morgunblaðinu nema búið að skipta út Samson í staðinn fyrir Magma og Ross Beatty í staðinn fyrir Björgólfs-feðga. Slík var slepjan og lofgjörðin frá almannatengsli þeirra sem skrifaði greinina og framkallaði fram kjánahroll dauðans þá.

Eitthvað impraði svo Jónína Ben á varnaðarorðum um Magma og HS Orku, manneskjan sem varaði mann og annan við Kaupþing og Baug og hvernig íslenskum bönkum var stjórnað, með harkalegum viðbrögðum ritstjórans en hvort það hafi verið réttmætt eða óréttmætt gagnrýni og svar, veit ég ekki enn þar sem ég hef ekki lesið greinina hennar.

En það sem einkennir grein Moggans þó er að reynt er mjög hlutdrægt að gera lítið úr allri gagnrýni og fegra hlutina sem felast í hinni "tæru snilld" samningsins. Þar er skautað framhjá mörgu eða jafnvel mishermt eða hálfsannleikar með engum gagnrýnum spurningum. T.d. er tekið fram að erlend lán OR séu með 1% vöxtum en er það svo? Hvar er yfirlitið sem sýnir það því það var sagt einhversstaðar annars staðar að lægsta lán OR hefði þessa vexti en lánasafnið væri með 1-9% vexti í heild sinni. Þess skal getið að Bandaríkin sem fær hæstu lánshæfiseinkunn fær víst best 3% vexti samkvæmt Bloomberg, þegar það tekur lán en ekkert er spurt út í slíkt.

 Þó má finna athyglisverða punkta snemma í greininni sem ég vona að séu réttir svo sem:"Kveðið er á um það í samningnum að eigandinn megi ekki taka nein verðmæti út úr HS orku með eignasölu og jafnframt að arðgreiðslur fari inn á vörslureikning sem standi undir tryggingabréfinu. Þá verður árlega ráðist í virðisrýrnunarpróf og fari virði veðsins undir ákveðin viðmiðunarmörk í gefinn tíma, þá þarf kaupandinn að leggja fram auknar tryggingar eða greiða inn á lánið. Annars hefur OR heimild til gjaldfellingar og eignast þá selda hlutinn aftur, auk þess að halda eftir 3,5 milljarða staðgreiðslu."

Eins og venjulega þegar Morgunblaðið eða Magmablaðið, fer í vörn fyrir þá sem stjórna þar á bak við tjöldin, þá er auk þess skautað framhjá ýmsum hlutum svo sem að gagnrýnin beinist alveg sérstaklega að því að þarna er verið að afhenda einkafyrirtæki nýtingarréttinn í 65-130 ár og tryggir þeim algjört vald yfir atvinnu-uppbyggingu á svæðinu, nokkuð sem er einfaldlega dulbúin einkavæðing. Það má benda t.d. á að einmitt Bandaríkin sem forkólfar fasisma fyrirtækjaræðis og frjálshyggju, horfa oft aðdáunaraugum til, miðar við 10 ára nýtingarrétt. Má jafnvel gera að því skóna að þetta sé tilraun sem veirð sé að framkvæma til að athuga með næstu skref:einkavinavæðingu OR og svo Landsvirkjunar ef Sjálfstæðisflokkurin skyldi ná völdum á ný,þjóðinni til mikilla hörmunga og endaloka vonar hennar um upprisu frá blindri illsku græðgisvæðingar frjálshyggjunar sem kom okkur á kné.

Margt fleira má svo sem setja út á þessa áróðursblaðamennsku fyrir leikvöll REI-flokkana í OR óg þáttakanda þar sem enn á ný eru farnir á stjá en það sem er þó mjög umhugsanavert er eins og Borgarahreyfingin benti á, er sú staðreynd að þarna eru sveitarfélög að braska með eigur þjóðarinnar allar án þess að farið hafi fram umræða í samfélaginu eða þverpólitískt sátt mynduð um þetta. Þarna er verið að nýta tækifæri kreppunnar til að einkavæða til vafasamra aðila, kanadísks Gordon Gekkos, fyrirtækis sem ekki er vitað um hver á en gæti verið í eigu útrásarvíkinga eða Rio Tinto. Auk þess hefur engin heildstæð stefna verið mynduð í orkumálum og því virkar þetta sem að það sé verið að reyna að koma því í gang að auðlindir þjóðarinnar verði einkavæddar áður en menn vakni upp við þann vonda draum að þjóðin á ekki neitt, Sjálfstæðismenn hafi náð að selja allt frá sér í gegnum sveitarfélögin.

Að lokum þá langar mig til að taka mér smá bessaleyfi og birta hér sláandi útreikninga um hina "tæru snilld" samningsins sem OR hefur gert við Magma sem ég og fleiri hafa fengið sent. Tölurnar þar lýsa nefnilega tapi Reykvíkinga á þessum samningi, nokkuð sem mun skila sér í hærra orkuverði með versnandi lífsægðum og verri skuldastöðu fyrir OR sem í dag skuldar um 210 milljarða. Þetta er framkvæmt af manni sem er ekki flokkstengdur eða slíkt, svo sú vörn fer og hann biður líka um það að þetta verði hrakið með tölfræði, nokkuð sem sárlega vantar í allan málflutning þeirra sem ætla að lauma þessum samning í gegnum borg og býli. Hér er sá útreikningur allur:

"Ágæti lesandi,

Í ljósi þess að athugasemd sem ég skrifaði inn á bloggsíðu Láru Hönnu Eiríksdóttur varðandi sölu Orkuveitur Reykjavíkur á 31.23% hlut sínum í HS Orku til Magma Energy hefur verið notuð víða í skrifum annarra aðila um málið vil ég útskýra aðeins betur niðurstöðu mína í þessu máli.

Síðan ég skrifaði upphaflega athugasemd mína um samning OR við Magma Energy, hefur samningurinn verið birtur, sem eru mjög góðar fréttir.  Það breytir smá útreikningum mínum en því miður ekki í aðalatriðum.  Tap Orkuveitu Reykjavíkur á sölunni til Magma Energy eru tæpir 10 milljarðar króna án tillits til áhrifa verðbólgu og gengisbreytinga næstu 7 árin.

Lát mig reyna að útskýra hvernig ég reiknaði dæmið, og hvet svo alla sem geta hrakið útreikningana - með öðrum útreikningum - að gera það.  Því ég vona fyrir hönd eigenda Orkuveitu Reykjavíkur og Íslendinga að þetta sé allt mikill miskilningur og að fjárhagslegur hagur þeirra hafi verið tryggður.

A.  Beint bókfært tap

Beint bókfært tap af sölunni er ISK 3,695 milljónir og reiknast svo (allar tölur hér að neðan eru í milljónum króna, 1,000 milljónir = 1 milljarður):

ISK milljónir

Skýringar

Bókfært

Söluverð

Tap

     

Keyptir hlutir af Hafnarfirði

1

7,078

5,655

-1,423

Hlutir í eigu OR

2

8,675

6,402

-2,273

Samtal

 

15,752

12,057

-3,695

 

Skýringar

 

1.  Keyptir hlutir af Hafnarfirði

OR keypti 896.154.577 hluti af Hafnarfjarðarbæ, kaupverðið tæpir 7.90 kr á hlut, eða 7.078 milljónir

OR selur Magma 896.154.577 hluti á 6.31 kr per hlut, eða á 5.655 milljónir

Bókfært tap 1.423 milljónir

 

2.  Hlutir í eigu OR

Bókfært verð hluta í eigu OR er 8.675, þetta gefur bókfært verð beggja hluta sem 15.752 milljónir

Söluverð Magma er önnur þekkt stærð, eða 12.057 milljónir

Þetta þýðir að eldri hlutir í eigu OR eru seldir með 2.273 milljóna tapi

 

Samanlagt bókfært tap er því 15.752 - 12.057 = 3.695 milljónir

B.  Vaxtakostnaður

Flóknara, og umdeilanlegra, er hvernig ber að reikna vaxtahliðina en meðfylgjandi eru þær forsendur sem ég hef notað:

Söluverð til Magma

 

ISK milljónir

   

Staðgreitt

30%

3,617

7 ára kúlulán

70%

8,440

 

100%

12,057

 

  • OR lánar semsagt Magma 8.440 milljónir í 7 ár.
  • OR er mjög skuldsett fyrirtæki og á þessa peninga ekki í sjóðum. OR þarf því í raun að taka lán fyrir þessari upphæð eða eins og má líka orða það OR getur ekki greitt niður sín lán í dag um 8.440 milljónir því ekki fengið söluandvirðið að fullu greitt frá Magma. Því er fullkomlega eðlilegt að reikna vexti af þessari upphæð. Bæði vexti sem OR fær borgað fyrir að lána Magma þessa upphæð en líka þá vexti sem OR þarf að borga af þessari upphæð (því getur ekki greitt upp önnur lán því ekki fengið neitt greitt).
  • Magma borgar OR 1.5% óverðtryggða vexti af þessari upphæð, það er staðreynd.
  • Skv. árshluta skýrslu OR (30.06.2009) bera vaxtaberandi skuldir fyrirtækisins 0.1-9.325% vexti.
  • Ólíklegt verður að teljast að OR fái vexti nálægt núllinu þessa dagana, ætli efri mörkin séu ekki líklegri.
  • Hins vegar verður að teljast ljóst að ef OR fengi þessa 8.440 milljónir greiddar í dag þá myndi OR nota þá (vonandi) til að greiða fyrst upp óhagstæðustu lánin sín, þ.e. með 9.3% vöxtunum og því er sú vaxtaprósenta notuð hér

 

Lánsupphæð til Magma

 

8,440

1.5% Vextir inn (frá Magma)

1.5%

-127

9.325% Vextir út (m.v. vaxtaberandi kostnað OR)

9.325%

787

Nettó vaxtagjöld umfram tekjur á ári

 

660

Samtals vaxtagjöld umfram tekjur í 7 ár

 

4,623

 

Til viðbótar bætist að OR skuldar enn Hafnarfjarðarbæ fyrir hlutinn sem keyptur var af þeim.

Skv. samningum þá borgar OR Hafnarfjarðarbæ 50% strax, sem er álíka upphæð og 30% staðgreiðslan frá Magma.

 

Kaupverð á hlut Hfj

 

7,078

OR staðgreiðir Hafnarfjarðarbæ 50%

 

3,539

Skuld OR við Hafnarfjarðarbæ til 7 ára

 

3,539

 

Af skuld OR við Hafnafjarðarbæ þarf OR að borga 4.5% auk VERÐTRYGGINGAR, hér er ekki tekið tillit til hennar, en allir þekkja í dag hversu gríðarleg áhrif hún getur haft.

 

Vextir (greitt til Hafnarfjarðarbæjar) 4.5% á ári

 

159

Samtals vaxtakostnaður við Hfj.bæ á 7 árum án verðtryggingar

1,115

 

Út frá þessum forsendum er vaxtakostnaður OR ISK 5.738 milljónir á 7 árum

 

Vaxtagjöld umfram tekjur í 7 ár

 

4,623

Vaxtagjöld til Hafnarfjarðarbæjar í 7 ár

 

1,115

Samtals vaxtarkostnaður OR í 7 ár

 

5,738

 

C.  Samanlagt áætlað heildartap

Heildartap OR af samningnum er því áætlað ISK 9.433 milljónir án þess að tekið sé tillit til gengisáhættu (né verðtryggingarnar af láninu við Hafnarfjarðarbæ).

 

Beint bókfært tap

 

3,695

Nettó vaxtabirgði OR í 7 ár

 

5,738

Heildartap OR vegna sölunnar

 

9,433

 

Ef rétt þá reynist ekki "dýr Hafliði allur"

Almennt um gengisáhættu

Til viðbótar kemur gengisáhætta, en lánasafnsfléttugjaldeyrisstýringuskýringin hjá Guðlaugi G Sverrissyni, stjórnarformanni OR, í Kastljósi 1sta September 2009 var ansi loðin.  OR hefur vissulega beitt almennri gjaldeyrisáhættustýringu í gegnum tíðina, en því miður ekki tekist neitt sérstaklega vel til eins og ársreikningar þeirra sanna.  Því hef ég áfram mínar efasemdir um gengisvörn samningsins (sem verður auk þess að vera ansi öflug til að bæta upp tapið því eftir stendur ofangreint tap af samningnum, með eða án gjaldeyrisvarna).

Góð vaxtakjör?

Guðlaugur, stjórnarformaður OR, hélt því líka fram í Kastljósi 1 September 2009 að 1.5% vextir af skuldbréfinu til Magma væru góðir vextir þar sem stýrivextir í US væru nánast 0%.  Svona málflutningur er stórlega misvísandi.  Það fær enginn lán á stýrivöxtum, ekki einu sinni bandaríska ríkið (sem er með AAA credit rating) það þarf að greiða 3% vexti af sínum 7 ára lánum (www.bloomberg.com).  Þetta eiga allir stjórnarmenn í öllum fyrirtækjum að vita.  Magma er nýstofnað fyrirtæki sem hefur verið rekið með tapi hingað til.  Er það betri skuldunautur heldur en bandaríska ríkið að mati Guðlaugs?  Reyndar er það ekki móðurfélagið Magma sem er að kaupa hlutinn í OR, heldur sænskt eignarhaldsfélag í eigu Magma! 

Óbeint eignahald OR - Samræmist það úrskurði Samkeppnisráðs?

Eftir stendur að OR er með óbeina eingaraðild að HS Orku.  Þetta er vegna þess veðs sem tekið var í hlutabréfum Magma í HS Orku.  Þessi óbeina eignaraðild nemur 21.86% af heildarhlutafé HS Orku, sem er vel yfir þeim 10% sem OR mátti eiga í HS Orku.  Er samningurinn við Magma því í raun ekki ógildur?  OR ber skylda gagnvart eigendum sínum að tryggja að virði þessa hlutar skerðist ekki.  Hvernig hyggst OR að gera það ef félagið má ekki koma nálægt rekstri HS Orku?

Að lokum má benda á að það hefði mátt draga úr tapi OR af þessum samning með því að selja ekki öll bréfin (31,23%) í félaginu.  En samkvæmt síðasta úrskurði Samkeppnisstofnunar er OR heimilt að eiga áfram 10% hlut.  En auðvitað hefði OR ekki átt að taka tilboði Magma nema gegn 100% staðgreiðslu (fyrst Magma er svona góður skuldunautur þá hefði þeim ekki átt að vera skotaskuld úr því að fá lán erlendis). 

Ef útreikningar mínir eru réttir þá vona ég svo innilega að þessum samningi verði hafnað.  Það er ekki hægt að bjóða íslenskri þjóð lengur upp á svona vinnubrögð og svona viðskiptahætti.

Með kveðju,

Birgir Gíslason"

Ég vona svo að fólk sem ætlar að gagnrýna útreikningana sýni fram á það með tölfræði en ekki innantómum orðum flokksmataðs áróðurs um að allt sé rangt því flokkurinn segir að það sé rangt.

Fjölmennum svo á fimmtudag í ráðhúsið, mætum á pallana og látum óánægju okkar í ljós með veru okkar þar og sýnum jafnvel í verki.

 

 


mbl.is Epli og appelsínur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tímalína fyrir ríkissaksóknarann sem vill ekki rannsaka

ÉG er búinn að klóra mér aðeins í hausnum yfir þeim fréttum að ríkissaksónari hefði ekki sýnt alls engan áhuga á að rannsaka greiðlsur FL Group til Sjálfstæðisflokksins né talið það mútur. Hann virðist eingöngu láta sér nægja skýringar mútuþegans sjálfs sem segir að ekkert sé að, þetta sé eðilegur styrkur.

Mig langaði því að draga upp frá gamalli færslu tímalínu sem gæti þó kannski fengið hann til að fá áhuga á þessu máli og svo skemmtilega vill til að það tengist Hitaveitu Suðurnesja sem er einnig hitamál þessa daganna vegna Magma-samningsins. Ég tel nefnilega upphafið á styrk FL og áframhaldandi brötli Sjálfstæðisflokksins við að koma Hitaveitu Suðurnesja í hendur einka-aðila, vera þarna og rifja því upp þessa tímalínu ef honum skyldi hafa yfirsést þetta. Hún er reyndar aðeins viðbætt vegna eins atriðis á milli jóla og nýárs 2006 sem kemur fram í grein Péturs Blöndals um  REI-málið illræmda.

Skoðum smá tímalínu í tengslum við einkavæðingu HS og stofnun GGE.

  • 20. desember Árni Matthíasen fjármálaráðherra og Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, fela einkavæðingarnefnd á fundi, að einkavæða hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja. Á sama fundi er bréf tekið fyrir þar sem Glitnir lýsir áhuga sínum á að kaupa HS.
  • Milli jóla og nýárs fer Ásgeir Margeirsson aðstoðarforstjóri OR í heimsókn til Guðlaugs Þ. stjórnarformanns OR, á spítala þar sem Gulli liggur og kynnir honum hugmyndir um stofnun Geysi Green Energy.
  • 29. desember Greiðsla FL Group, eins af eigendum Glitnis, upp á 30 milljónir berst inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Um svipað leyti eru greiddar 25 millur frá Landsbankanum.
  • 1. janúar Lög um styrki lögaðila taka gildi.
  • 7. janúar Glitnir og FL Group stofna fyrirtækið Geysir Green Energy ásamt  VGK-hönnun.
  • 2. febrúar Reykjanesbær kaupir 2,5% hlut í GGE fyrir 175 milljónir. 
  • 30. apríl GGE eignast hlut ríkisins, til viðbótar hlutnum í HS frá Reykjanesbæ. Samtals er GGE með 32% og reyndi síðar meir að eignast meir, bæði um sumarið og svo hefði REI-sameiningin skilað um 48% hlut í HS.
Hann getur svo skoðað færsluna alla hér, ef það skyldi kvikna í honum áhugi að rannsaka.

 


REI II: Hin "tæra snilld" Magma-samningsins

Það var einstaklega nöturleg, súrrealísk og grátbrosleg sýn sem beið kjarnakvendis ágæts sem ekki er sama um hagsmuni almennings og framtíð þjóðarinnar, þegar hún skundaði niður í ráðhús til að fylgjast með umræðum um einstaklega mikilvægt mál: brunaútsölu á hlut borgainnar í HS Orku, til erlends skuggafyrirtækis á i. Skvaldrandi áhugalausir borgarfulltrúar sem báru greinilega meiri umhyggju fyrir nýjum Fésbókar-vinum heldur en samstarfsmönnum sínum sem voru að halda ræðu, hvað þá hagsmunum Reykvíkinga og framtíðar þeirra, nokkuð sem truflaði "status"-breytingar á borð við:"Ég á ógisslega krúttlega tölvu" eða "Þorleifur í vinstri grænum fær ekki að fljúga á milli landa eins og ég, ligga ligga lá".

Nokkuð sem kemur ekki á óvart þegar maður horfir á hið nýja REI-mál og þess hryllings sem felst í því: að við séum að glata yfirráðum yfir auðlindum okkar í allt að 130 ár, enda stóð viðkomandi upp og ákvað að trufla fundinn með ósk um að borgarfulltrúar einbeittu sér að þessu mikilvæga máli, nokkuð sem skilaði illum augngotum og vanþóknun um að pöpullinn væri að hafa skoðun á þeim störfum sem yfirstéttin innti af hendi inn á Fésbók.

 En þetta vekur hjá manni upp hræðilegar tillfinningar og ugg um enga framtíð hér í landi þar sem fólk sem lætur sig engu máli skipta um framtíð þjóðarinnar og hvort almenningur muni bera skertan hlut frá afdrífaríkum ákvörðunum þeirra. Nei, þeim þykir meira gaman að velta fyrir sér niðurstöðum Fésbókar-prófsins "Hvaða spillta aðalsmaður ertu?" eða "Hvaða útrásarvíkingi hentar mér best að þóknast?" og flissa í metingi yfir því hversu lík þau eru Lúlla kóng og konu hans Marie Antoinette.

En þetta vekur upp einnig bræði, mjög mikla bræði yfir því sinnuleysi, vanhæfni og spillingu hinnar "tæru snilldar" sem felst í Magma-samningnum sem meir og meir er að koma upp á yfirborðið að sé viðurstyggilegur samningur fyrir alla aðra en þá sem hagnast einir: stjórnmálamenn og fyrirtækin sem hafa þá í vasanum. Lítum á nokkur atriði sem hafa verið upplýst um þennan samning og gera hann einstaklega óhagstæðan:

  • Við missum öll yfirráð yfir auðlindum þjóðarinnar á Reykjanesinu í allt að 130 ár.
  • Orkuveita Reykjavíkur er notuð sem lánastofnun til handa erlendu fyrirtæki sem getur ekki fengið fjármagn erlendis. 
  • Fjármálastjórn Reykjavíkurborgar hefur reiknað það út að tap Reykvíkinga á þessu verði um 5-6 milljarðar. Þetta er svipað og kostar að reka leikskólakerfið í dag, í ca hálft ár.
  • Samningurinn felur í sér smágreiðslu nú upp á 4 milljarða sem er ca. eitt stk. Mogga-skuldir afskrifaðar og svo kúlulán til 7 ára með veð í hlutabréfunum einum en engum alvöru eignum. Þetta býður upp á að Magma getur mergsogið HS Orku og skuldsett það alla leið til Katmandu, hent svo hlutabréfunum til baka og sagt "Æi, við þurfum þetta ekki lengur"
  • Kúlulánið er ekki bara með veð í pappír sem við notum vanalega við þörfum okkur, heldur ber aðeins 1,5% vexti og það óverðtryggt lán sem miðar við álverð að hluta til. Til glöggvunar má benda á að Bandaríkin sem fá AAA í lánshæfni, fengu aðeins 3,5% vexti.
  • Á sama tíma eru Reykvíkingar að borga fyrir hlut Hafnarfjarðarbæjar með 4,5% verðtryggðum vöxtum, sem hinir "tæru snillingar" REI-flokkana keyptu í fyrra ævintýri sínu sem til allrar hamingju tókst að stöðva þá.
  • Kúlulánið sem slíkt er ekki bara með fyrrgreinda ókosti því það á að endurgreiðast í dollurum en í blekkingarleiknum sem nú er stundaður, er upphæðin sett fram í krónum miðað við núverandi verðlag. Þetta þýðir það að ef krónan hækkar, þá fá Reykvíkingar, Akurnesingar og Borgnesingar enn minna í sinn vasa.
  • Við það að HS Orka endar í höndum einkafyrirtækis, þá mun hagnaður af orkusölu ekki lenda í vasa borgarinnar og sveitarfélaga viðkomandi, heldur í höndum samviskulausra viðskiptamanna.
  • Einnig er öruggt að öll orkusala til álvers og gagnavers mun verða algjörlega úr höndunum á sveitarfélögunum sem missir þar stóran spón úr aski sínum.
  • Eigendur HS Orku sem ekki er vitað hverjir eru en miðað við orðróma séu líklegast Rio Tinto, einhverjir útrásarvíkingar og slík óbermi, munu geta stjórnað og ákvarðað algjörlega um hvernig atvinnu-uppbygging verður á svæðinu. Fyrirtækið mun geta og mun örugglega kúga aðila sem mótmæla þeim og gera sveitarstjórnum erfitt fyrir sem malda í móinn.
  • Orkuverð til almennings mun hækka gífurlega, versnandi þjónusta og annað sem mun skerða gífurlega lífskjör fólks, verður að raunveruleika.

Þegar maður lítur á þetta og orðaskak við fótgönguliða REI-flokkana sem standa að þessu ásamt mörgum ósvöruðum spurningum úr fyrir pistli, þá verður manni ljóst að það er eitthvað rotið í Danmörku og það er ekki líkið af föður Hamlets né hákarli útrásarvíkinga. Nei, það er eitthvað meira á bak við þetta, eitthvað ljótt, eitthvað illt og spilt sem hefur oft komð við sögu áður þegar þessir tveir flokkar koma saman og fara að skipta á milli sín eigum almennings.

Og hverjir væru það? Jú, það væru útrásarvíkingarnir og gamlir klíkubræður sem stjórnað hafa á bak við tjöldin í REI-flokkunum og mín ágiskun er: S-hópurinn og svo einhverjir úr Landsbankanum, kannski Bjöggi Thor, kannski Halldór J. Kristjánsson sem einmitt er farinn til Kanada til að taka við nýju starfi tengt fjárfestingum í orkugeiranum eða einhverjir slíkir. Hver veit en fullviss er ég innra með mér að einhverjir af þessum koma nálægt þessari "tæru snilld" sem matreidd er hér í annari útgáfu af REI-málinu sem hér birtist.Já,REI-mál taka tvö, sömu leikmenn, sama offors, sama auðlind á ný en nú bara með nýju nafni kennt við Magma.

Kannski er ég ofsóknaróður líkt og einn af varðhundum REI-flokkana kallaði mig í gær en líklegast er maður búinn að sjá of oft hvernig hin íslenska spilling virkar, hvernig flokkarnir starfa, hvaða afleðingar það hefur fyrir íslenskan almenning og hvað íslenskir stjórnmálamenn dansa í kringum klíkufélaga og auðmenn á kostnað almennings, sem fær mann til að telja þetta vera drifkraftinn á bak við ofsa REI-flokkana við að selja þessu erlenda skuggafyrirtæki sem getur ekki einu sinni fjármagnað kaupin sjálft erlendis. Þó gæti þetta verið vitleysa hjá mér og þessir flokkar eru eingöngu að taka hið sárasaklausa inngöngupróf í Hell's Angels og sáu að þarna væri hægt að "nýta tækifæri kreppunar" eins og varaformaður Sjálfstæðisflokksins orðaði það svo einhvern tímann til að fá að klæðast leðrinu undir merkjum vítisengla.

Gerið eitt ef ykkur er ekki sama um auðlinda þjóðarinnar, eyðið örfáum mínútum af tíma ykkar til að gera eitthvað í málunum, sendið bréf, faxið á borgarfulltrúa eða REI-flokkana, skrifið greinar, rísið upp úr sófanum og mótmælið eða hvað sem er, en umfram allt gerið þetta ekki bara fyrir ykkur, heldur börnin ykkar og barnabörn sem eiga rétt á því að fá að njóta auðlinda í eigu þjóðarinnar en ekki í umsjá innlendra og erlendra braskara sem horfa ekki á hægri eða vinstri þegar kemur að því hámarka eigin gróða þegar kemur að þeim sem verið er að mergsjúga hvern einasta aur úr.

Hér á eftir fylgja netföng allra borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa ásamt stöðluðu bréfi tekið annars staðar frá, fyrir þá sem vilja slíkt en umfram allt, stöðvum græðgivæðingu auðlindanna, græðgivæðingu sem minnir mann strax á hvert síðasta tilraun REI-flokkana á slíku endaði og við erum nú að súpa seyðið af, í skelfilegu hamförum bankahrunsins.

Hér eru svo textinn og netföngin:

"

Netföng borgarfulltrúa sem hægt er að afrita beint í póstforrit:
vilhjalmurth@reykjavik.is,bjork.vilhelmsdottir@reykjavik.is, dagur.b.eggertsson@reykjavik.is,gisli.marteinn.baldursson@reykjavik.is, borgarstjori@reykjavik.is,jorunn.frimannsdottir@reykjavik.is, jvi@reykjavik.is,kjartan.magnusson@reykjavik.is,oddny@reykjavik.is, olafur.f.magnusson@reykjavik.is,oskar.bergsson@reykjavik.is, sigrun.elsa.smaradottir@reykjavik.is,soley.tomasdottir@reykjavik.is, thorbjorghelga@reykjavik.is,thorleifur.gunnlaugsson@reykjavik.is

Netföng varaborgarfulltrúa sem hægt er að afrita beint í póstforrit:
marsibil@reykjavik.is,sif.sigfusdottir@reykjavik.is, bolli@hi.is,marta.gudjonsdottir@reykjavik.is, ragnar.s@simnet.is,kristjan.gudmundsson@or.is, bjorn.gislason@shs.is, aslaug@sja.is,margret.kristjana.sverrisdottir@reykjavik.is,dofri.hermannsson@reykjavik.is, stefan.johann@islandia.is,steben@internet.is, gerlag@internet.is, hermannv@nordlingaskoli.is

Hugmynd að texta, ef vill: 

Kæri borgarfulltrúi

Ég hvet þig eindregið til að samþykkja EKKI söluna á HS Orku. Ísland þarf á öllum sínum auðlindum að halda í komandi kreppu og þessi orka verður bara verðmætari eftir því sem á líður. Ég minni á að það styttist í sveitarstjórnarkosningar og það verður örugglega minnt á þetta mál þegar nær dregur, hvernig sem það fer. Mér finnst að hagsmunum Orkuveitunnar og borgarbúa sé illa sinnt með því að selja hlutinn á undirverði.

Virðingarfylls
t"

 


mbl.is Segir samninga við HS Orku í samræmi við orkulög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurningar varðandi tilboð Magma og einnig ársreikning HS

Það er alltaf meir og meir sem vekur upp áleitnar spurningar og óþægilegar í tengslum við einkavæðingu Hitaveitu Suðurnesja, tengslanet o.fl. sem ég hef fjallað um aðeins áður. Þarna eru auðlindir Suðurnesjamanna að komast í hendur erlends fyrirtækis sem enginn veit hver á og innlendra braskara sem skulda á bilinu 20-30 milljarða hjá Íslandsbanka en fá að starfa áfram óáreittir. Er það hugsanlega vegna náinna tengsla þar á bæ við eigendur Geysi Greens Energy, svo náin og innvígð að það er eins og klippt út úr verkferilskerfi hins Gamla, Spillta Íslands.

En nú er ögurstund í dag því tilboð Magma Energy um kaup á hlut OR í HS Orku sem gæfi þeim meirihlutaeign rennur út í dag eða eins og það kallast hjá gamla, spillta Íslandi: yrðu "kjölfestufjárfestir". Í framhaldi af því er ágætt að velta fyrir sér nokkrum spurningum og ekki bara hverjir standa þarna á bak við í raun. Á heimasíðu Ögmunds Jónassonar má finna bréf frá lesenda sem ber upp nokkrar spurningar:

"• Ef hluturinn verður samt sem áður seldur, hvaða tryggingu höfum við fyrir því að reksturinn verði til hagsbóta fyrir landsmenn og arðurinn renni ekki úr landi?
• Afhverju tekur félagið ekki lán hjá lánastofnunum í Kanada eða Bandaríkjunum á þeim lágu vöxtum sem allir tala um að séu í boði og borgar greindan hlut upp í topp þ.e. skuldar hinum erlendum bönkum eftirstöðvar kaupverðsins frekar en að Orkuveita Reykjavíkur taki að sér að fjármagna þessi kaup?
• Ef kjörin eru ekki nógu hagstæð í þessum löndum, fyrir fyrirtæki sem er jafn vel rekið og vel stætt og eigandi þess segir, er þá eðlilegt að Orkuveita Reykjavíkur taki þessa áhættu og veiti lánið? Það er eins og það eigi bara að selja sama hversu lélegt tilboðið er."

Þetta eru nefnilega umhugsunarverðar spurningar og eiginlega vekur fleiri upp.

  • Hversvegna á OR að lána Magma fyrir hlutnum?
  • Af hverju á OR að fara að selja með gríðarlegu tapi fyrir okkur útsvarseigendur í Reykjavík sem eigum þennan hlut?
  • Hvaða skynsemi felst í því að selja hlut og lána með 7 ára kúluláni á svo lágum vöxtum að lánið brennur upp í verðbólgu?
  • Eru borgarfulltrúar Reykjavíkur og stjórn OR nokkuð að hugsa um hagsmuni Reykvíkinga?
  • Hvað býr að baki þessari asa við að koma hlut OR í HS Orku í hendur aðilum sem ekkert er vitað um?
  • Hversvegna þarf Magma að fá lán hér?
  •  Hversvegna geta Magma ekki fjármagnað kaupin erlendis(svo maður hamri á þessu aftur)?
  • Hvað er vitað um fjárhag Magma og eigendur þeirra?

Einhverra hluta vegna verður maður sannfærðari og sannfærðari um að þetta sé nýtt REI-mál á ferð, sérstaklega þar sem eins og ég hef ymprað á áður, það eru sömu leikendur enn við borðið, sama fólkið að véla um að koma eigum almennings í hendur örfárra manna eða fyrirtækja sem er nákvæmlega sama um hvernig okkur vegnar, heldur aðeins hugsað um gróðann sér til handa með tilheyrandi hækkun orkuverðs, versnandi þjónustu og öllum þeim skelfingum sem fylgir einkavæðingu auðlinda og nauðsynlegrar þjónustu til handa almenningi í hendur rándýra græðginnar sem er enn að.

En talandi um að hugsa ekki um hag almennings, þá benti Sveinn nokkur Pálsson eða Sveinn hinn Ungi, á áhugaverðan hlut í bloggfærslu sinni um Hitaveitu Suðurnesja. Sveinn gluggaði þar í ársreikninga Hitaveitu Suðurnesja fyrir árið 2008 og tók eftir frekar áhugaverðum hlut í tengslum við tap HS á því ári. Hitaveita Suðurnesja tapaði þá 11,7 milljörðum sem er talsverður viðsnúningur frá árinu á undan og fyrri árum. Það sem er þó sérlega athyglisvert í þessu öllu er hver er ástæðan á hluta tapsins.

Hitaveita Suðurnesja tapaði 4,6 milljörðum vegna afleiðusamninga.

Eins og mér skilst, þá er afleiðusamningar einfaldlega veðmál um að eitthvað verði á ákveðnu verði eftir einhvern tíma eða með öðrum orðum, þú veðjar eða ert í raun að taka þátt í fjárhættuspili. Þetta vekur upp ákveðnar spurningar einnig:

  • Hversvegna er fyrirtæki sem er í orkuviðskiptum að stunda fjárhættuspil?
  • Hversvegna leyfðu opinberir eigendur Hitaveitu Suðurnesja sem hefur það að markmiði að stunda orkuframleiðslu, að farið væri út í áhættusamt fjárhættuspil og brask?
  • Hversvegna gripu þeir ekki í taumana og hversvegna gerði enginn athugasemd við þetta?
  • Eru fleiri orkufyrirtæki í svipuðum "monkey business"?
Þetta eru bara örfáar spurningar en stórar sem áhugavert væri að sjá svör við og ef "öllum steinum verður velt við" þá munu örugglega fleiri og óhugnanlegri spurningar koma upp á yfirborðið.

 

 


mbl.is Eignast meirihluta í HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugleiðingar Ísþræls

Í dag var Ice-Save samþykkt og í dag ákvað ég loks að skrifa mitt fyrsta, langa og eina innlegg um þetta mál. Oft áður hef ég reynt að rita eitthvað um þetta mál sem hefur verið vandræðamál sem ekki varð komist undan að leysa á einhvern hátt, en gengið frekar illa þar sem skoðanir mínar fyrr í sumar sveifluðust til og frá líkt og margra. Ekki var það til bóta að umræðan var að mestu af því tagi að manni bauð við henni, upphrópanir um föðurlandsvikara og brigsl um landráð af hálfu fólks sem spilaði samkvæmt fyrirframgefnum skoðunum á ríkistjórn eða samkvæmt möntru flokkslínu, drekktu nær allri vitrænni umræðu og á endanum hafa örugglega náð að fæla fólk frá að skoða málin eða taka ígrundaða ákvörðun út frá öllum þáttum.

Svo maður tali um svona hvernig þetta hefur litið út og þróast frá mínum sjónarhóli, þá ætla ég að byrja frá því að samningurinn kom í höfn, samningur sem er ekki upphaf alls ills, heldur eingöngu punktur á þessari vegferð sem hófst með gráðugum mönnum í banka allra landsmanna. Einhvern veginn þá varð mér það ljóst að þegar samninganefndin var farin af stað, að þetta væri mál sem þyrfti að semja um því erfitt yrði að fara dómstólaleiðina miðað við öll óveðurskýin og alkulinu sem ríkti gagnvart Íslandi á alþjóðavettvangi. Einnig var það öruggt að við þyrftum að gangast við ábyrgðum okkar sem fyrri ráðamenn höfðu gengist við og með nokkuð almennum vilja stjórnarþingmanna og að mig minnir einnig að einhverju leyti stjórnarandstöðu.

Svo kom samningurinn sem manni varð brátt ljóst að var ekki góður samningur né réttlátur frekar en margt annað sem hefur gerst hér. Samninganefndinni höfðu orðið á mistök með ýmsa þætti, nokkuð sem flestum er ljóst og alltof mörg vafa-atriði voru þarna sem vöktu upp réttmætar spurningar. Aftur á móti blæs maður á það að það hafi verið gert af ásettu ráði eða af einhverjum undirlægjuhætti, nefndin var líkt og nær því allir íslenskir stjórnmálamenn og embættismenn í gegnum tíðina, hálfgerðir kjánar í samanburði við erlenda samningsaðila, sendir á fund faglærðra hákarla. Hvort við hefðum getað fengið betri samninga með öðrum innlendum mannskap er ég ekki viss og hreinlega stórefast um það eftir hina stórkostlegu umgjörð sem Sjálfstæðisflokkurinn hreykti sér af með 6,7% vöxtum og styttri lánstíma, og hafði örugglega áhrif á það hvernig endanlegur samningur leit út.

Í fyrstu voru viðbrögð manns að það ætti að troða þessum samningi þvert upp í boruna á feðgum tveimur í teinóttu ásamt bankabjálfum sínum, miðstjórnarmanni Sjálfstæðisflokksins sem finnst það þokkafullt að vera með slaufu og öðrum þeim sem sátu í bankastjórn, og hafna honum algjörlega. Það kæmi nefnilega ekki til greina að borga skuldir vina Davíðs Oddsonar og vinnumiðlunar SUS sem kallast Landsbankinn, hafði stofnað til. Eðlileg viðbrögð byggð á hreinræktaðri reiði og tilfinningasemi og ekkert að því svosem nema kannski að þessi niðurstaða var fengin án íhugunar eða vangaveltna.

Svo fór umræðan meir og meir af stað og þegar eftir smátíma maður var byrjaður eingöngu að lesa það sem byrjaði ekki á landráð, föðurlandsvik, þjóðníðingar eða „þjóðhollir menn eiga að rísa upp gegn svikráðum KOMMÚNISTA“, þá byrjaði maður algjörlega að sveiflast með og á móti með hverri góðri grein sem reyndi að rökstyðja mál sitt án gífuryrða. Maður lifði algjöra óvissu um allt saman og gat ekki lent á niðurstöðu innra með sér. Þó sem lengra leið á umræður sumarsins varð manni meira og meira ljóst að undan samningi kæmumst við ekki og þegar maður las eða hlýddi á fólk utan hjarta skotgrafa flokkana, fólk sem maður hafði lært af reynslunni að væri að segja hluti af heilindum og hefði nægilega sýn á hlutina til þess að meta þá, þá væri staðan einfaldlega sú að við værum „damned if we do, damned if we don‘t“ og sterkari líkur væri á að samþykkt samningsins væri skárri kosturinn af tveimur hræðilegum á gatnamótum þar sem svartnættið ríkti á þeim tveimur leiðum sem liggja framundan.

En orð og röksemdir nokkurra aðila eru ekki það eina sem fékk mig til þess að telja samþykkt skárri kost því í svona stórum málum sem margt hangir á spýtunni og hlutirnir eru ekki svart-hvítir, þá verður maður að bakka frá eigin tilfinningasemi stundum og horfa yfir vígvöllinn svo maður grípi aðeins til myndlíkingar, og þá varð manni brátt ljóst að þetta var barátta í vonlausri aðstöðu. Herinn stóð einn á vígvellinum gegn máttugum, sameinuðum andstæðingum fyrrum vina sem töldu sig svikna og hlunnfarna af þessum litla, hrokafulla her og blésu til sóknar gegn honum. Enginn vildi hjálpa þessum svikurum og þjófum sem nú stóðu í forarvaði við óhagstæð skilyrði sköpuð af þeim sjálfum með dyggum stuðningi nokkurra hershöfðingja og herdeilda sem höfðu aðstoða við svikin og þjófnaði frá vinum, herdeilda sem vildu svo ekki bera ábyrgð á eða iðrast þess að birgðar ætlaðar til að framfleyta hernum höfðu einnig horfið með aðstoð og/eða heimskupörum þeirra.

Hvað er til ráða á slíkum vígvelli? Hvað ber að gera? Valið er mjög einfalt, annað hvort berjast menn til síðasta manns gegn ofurefli við óhagstæðar aðstæður með litlum sem engum birgðum sem valda gjörtapi, nokkuð sem getur ekki farið öðruvísi með sundruðum her vegna svika og þjófnaða hershöfðingja, vina þeirra og undirmanna sem hinn almenni hermaður getur ekki sætt sig við að fylgja. Hinn möguleikinn í stöðunni er að koma sér í burtu af vígvellinum með sem minnstum skaða þó hann sé gríðarlegur orðinn, kaupa sér tíma til þess að sameina herinn á ný, koma honum í gegnum þrautagönguna sem bíður hans, refsa hinum seku, , endurskipuleggja sig, fá baráttuviljann á ný og hefja baráttuna á ný á vígvelli að eigin vali. Þó þessi orrusta sé töpuð, þá er ekki stríðið búið.

Hin strategíska hlið var þó ekki það eina sem bættist við í flóru röksemda því sýnin sem maður sá framundan í þjóðhagsspá ASÍ sem á eftir að birtast, var myrk og þung. Hið eitraða epli sem arfleifð mannfjandsamlegrar frjálshyggjutilraunar sem framkvæmd var á þjóðinni, var mjög eitrað og það þarf þennan sjö ára frest til að ná vopnum á ný því þó Damiklesar-sverð Ísþrælkunar hangi yfir okkur, þá eru sjö ár sem við höfum von til þess að hindra að hann slitni, sjö ár af því að reyna að byggja upp það sem drepið hefur verið: traust, sátt og virðingu, ekki bara heima fyrir heldur einnig erlendis.

Þar liggur nefnilega eitt af okkur stóru vandamálum, það er að við getum ekki eytt kröftum okkar í vonlausu baráttu sem Ice-Save er í raun miðað við núverandi aðstæður því traustið og virðingin utan frá er engin. Ef maður lítur út frá sjónarhóli þeirra erlendu þjóða sem við kljáumst við og vilja ekki treysta okkur nema gengið sé frá samkomulaginu, þá er þetta mjög einfalt: við erum hrokafull, við neituðum að hlusta, við komum fram af einstöku stærilæti og höfðum upp stór orð um að við borguðum ekki reikninga okkar, við tókum þátt í svindlinu og svikunum. Já, við tókum þátt utan frá séð því flestum er það ljóst ekki bara hér, heldur erlendis að stjórnvöld voru viljandi með í að halda blekkingunni áfram og skapa aðstæður fyrir stærstu svikamyllu sem sést hefur verið, hvort sem það voru ráðherrar, þingmenn, Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn með forystu eins af arkitektum hrunsins og viljugs velgjörðarmanns þeirra sem hreinsuðu fé frá breskum og hollenskum einstaklinga, líknarfélaga, spítala, sveitarfélaga og m.a.s. Scotland Yard. Já, Scotland Yard, Íslendingar rændu Scotland Yard, geri aðrir betur. Er það furða þó allir séu fúlir út í okkur?

Við erum vonda fólkið í augum heimsins og það breytist ekki með því að segja í hrokafullum tón:"Nei, við borgum ekki." Ef maður skrifar upp á ábyrgð fyrir einhverja, þá losnar maður ekkert undan ábyrgðinni þó viðkomandi stingi af frá skuldunum. Slíkt vita allir sem gerast ábyrgðarmenn á lánum eða öðru slíku, innheimtu-aðilinn horfir bara þegjandi á þig  með vorkunnarsvip yfir hrokafullri fáviskunni og segir svo:"Borgaðu annars hjólum við í þig af fullri hörku.. Réttlátt? Nei. Sanngjarnt? Nei. En ef við viljum semja og látum af hroka og afneitun á ábyrgð, þá eru frekari líkur á að okkur takist að fella niður hluta af skuldinni eða getum náð einhverju fé til baka frá hinum ábyrgðarlausa með jafnvel aðstoð innheimtumannsins.

Fleira gæti ég týnt til og ekki er það fallegt því efnahagslífið er að koðna niður, innan úr bönkunum heyrir maður að fyrirtæki séu að fara yfirrum vegna þess að það er ekkert hægt að gera, ákvörðunarfælni þar og vantraust erlendis frá hefur haft þau áhrif að sumir þurfa að staðgreiða eða greiða fyrirfram fyrir nauðsynlegar vörur eða varahluti, nokkuð sem gerir enn erfiðara fyrir sum fyrirtæki til að starfa eðlilega. Samfélagið var nefnilega sett á pásu og atvinnulífið látið ganga fyrir gufunum í bensíntanknum á meðan lýðskrum, orðalagspælingar og langdregið orðaska hefur gengið fyrir.  Til allrar hamingju þó var þessi orkunýting ekki alveg til einskins því þetta skilaði fyrirvörum sem gefur allavega einhverja glætu í þetta hvort sem það var fengið fram með lýðskrumi þeirra sem hugsa um hag sinna flokka ofar öllu eða baráttu þeirra sem stóðu heilir fyrir utan leikskólann á Austurvelli og heimtuðu að reynt yrði að breyta þessu svo skaðinn yrði lágmarkaður. Stjórnin hlustaði allavega, þingið gat ekki annað en þorað að reyna að ná lendingu og örugglega einhver góður hluti gerði sér grein fyrir því að lenda varð einhverri sátt, það varð að vinna saman

Þegar allt þetta er haft í huga og fyrirvara voru komnir í höfn, þá gat ég sem almennur borgari ekki lengur barmað mér, haldið áfram afneitun eða þrjósku. Ég verð því að greiða þessu atkvæði mitt með óbragð í kjaftinum og vona hið besta en ég set líka fyrirvara á þetta allt. Ég hef nefnilega líka sem almenningur, líka sem borgari og líka sem Íslendingur, ákveðnar kröfur bæði til þings og framtíðar.

Ég set því eftirfarandi fyrirvara til sjö ára en að þeim loknum, þá mun ég vera annaðhvort fluttur úr landi eða búiinn að ákveða að ég vilji tilheyra þessu þjóðfélagi lengur. Þessir fyrirvarar eru svo hljóðandi:

Ég krefst þess að stjórnvöld geri allt á þessum sjö árum til þess að fá IceSave-samningi breytt, reyni að bæta álit umheimsins á okkur og leggi allt í sölurnar til að lágmarka skaðann af þessum samning.

Ég krefst þess að stjórnvöld geri hvað sem þau geta til að ganga ekki nærri velferðarkerfinu, verndi auðlindir og þjóðareigur framar öllu gegn innlendum og erlendum fjárglæframönnum og öðrum sem ásælast eigur okkar og vilja eignast þær á bruna-útsölu með bellibrögðum og aðstoðar AGS.

Ég krefst þess að það verði lýst yfir algjöru stríði gegn þeim sem sviku okkur og komu okkur í þessa stöðu. Enginn miskunn, enginn fagurgali, enginn teknísk lagaflækja á að hindra að réttlæti á einhvern hátt nái fram að ganga.

Ég krefst þess að harðar verði gengið að þeim sem hafa sóað gífurlega magni fjár, þeim sem hafa ótæpilega farið ránshendi um bankanna í formi ofurlána og stóreignamönnum sem hafa sölsað undir sig fé með vafasömum hætti, en að almenningi sem hefur það eitt til sakar unnið að hafa asnast til að fæðast inn í samfélag siðlausrar frjálshyggju og spilltrar stjórnmála sem fyrirlitið hafa almenninga hingað til.

Ég krefst þess og tel það algjört skilyrði, að hér verði myndað nýr samfélagssáttmáli eða hið „Nýja Ísland“ og það verði ekki andvana fætt eða kæft í þinghúsinu eftir að róast í samfélaginu. Það skal verða stjórnlagaþing, það skal verða ný stjórnarskrá skrifuð af almenningi og fyrir þjóðina alla.

Ég krefst þess að þingmenn, ráðherrar og stjórnsýslan öll verði látin gangast undir strangar siðareglur sem hafi hagsmuni almennings að leiðarljósi og að Alþingi verði ekki lengur skúffufyrirtæki valdaætta, viðskiptablokka, auðmanna eða Viðskiptaráðs heldur Alþingi verði fyrir alla borgara landsins.

Ég krefst þess að það verði tryggt með lögum að siðferði verði látið ríkja í viðskiptum og þrengt verði að því frelsi sem orsakaði hrunið, frelsinu til að mega vera siðblindur og iðka slíkt í viðskiptum og hörð viðurlög verði sett vð brotum þar.

Og að lokum krefst ég þess, að hér rísi upp réttlátt samfélag,  gott samfélag sem ég get viljað búað í, samfélag þar sem maður getur horft framan í spegilinn og sagt:“Ég þraukaði, ég barðist og ég uppskar samfélag vonar, virðingar og sáttar öllum til handa.“ Ef það gengur eftir og þetta haft að leiðarljósi, þá er ég tilbúinn til þess að þrauka þorrann. Ef ekki þá er bara eitt sem hægt er að segja:

„Guð blessi Ísland, ég er farinn!“


mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuggaverk á Suðurnesjum II: Nýtt REI eða hvað?

Á Suðurnesjum er eitt síðasta vígi frjálshyggjunnar í Reykjanesbæ, sömu frjálshyggju og gerði þjóðina gjaldþrota og sömu frjálshyggju sem færði einkavinum banka, Síma og annað sem skúffufyrirtæki þeirra í ráðherrastól og einkavæðingarnefnd gáfu þeim. Nú er svo komið að frjálshyggjan sem veður enn áfram í blindri heimsku græðginnar og trúarofstækisins á það að auðmenn og einkafyrirtæki séu ofar þjóðinni, ætlar sér að koma orku-auðlindum Suðurnesja í hendur einkafyrirtækis um ókomna tíð.

En hvenær hófst þetta ferli allt? Þetta hófst í útrásinni illræmdu um áramótin 2006-2007 þegar bankarnir og braskarafyrirtækin voru byrjuð að horfa hýrum augum til orku-auðlinda sem eigna sem hægt væri að fá aukinn pening í veltuna fyrir kreditkortum, bíóferðum og gulláti forsvarsmanna þessara fyrirtækja. Í bloggfærslu frá því að styrkurinn frá FL-Group til Sjálfstæðisflokksins komst í hámæli, þá setti ég fram þá skoðun að styrkurinn hefði verið mútugreiðsla vegna einkavæðingar á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja og þar setti ég fram eftirfarandi tímalínu um upphaf þessa ferlis:

  • 20. desember Árni Matthíasen fjármálaráðherra og Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, fela einkavæðingarnefnd á fundi, að einkavæða hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja. Á sama fundi er bréf tekið fyrir þar sem Glitnir lýsir áhuga sínum á að kaupa HS.
  • 29. desember Greiðsla FL Group, eins af eigendum Glitnis, upp á 30 milljónir berst inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Um svipað leyti eru greiddar 25 millur frá Landsbankanum.
  • 1. janúar Lög um styrki lögaðila taka gildi.
  • 7. janúar Glitnir og FL Group stofna fyrirtækið Geysir Green Energy ásamt  VGK-hönnun.
  • 2. febrúar Reykjanesbær kaupir 2,5% hlut í GGE fyrir 175 milljónir. 
  • 30. apríl GGE eignast hlut ríkisins, til viðbótar hlutnum í HS frá Reykjanesbæ. Samtals er GGE með 32% og reyndi síðar meir að eignast meir, bæði um sumarið og svo hefði REI-sameiningin skilað um 48% hlut í HS.

Á þessum tíma stýra hrunvaldar tveir sem kallast Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, bæði ríki og borg auk þess sem Reykjanesbær er á valdi Sjálfstæðisflokksins. Báðir þessir aðilar eru vel tengdir inn í bankanna með einkavæðingarnefnd sem inniheldur menn sem komu bönkunum í hendur ósvífinna fjárglæframanna, ÍAV í hendur góðra vina þar sem setið var báðum megin borðs og svo að ógleymdum Símanum sem er í höndum eins skelfilegasta fyrirtæki landsins sem enn skrimtir: Exista.

En nóg um það. Hlaupum aðeins hratt yfir sögu í þessu ferli öllu. Um sumarið þá er REI stofnað, fyrirtækið sem átti eftir að verða banabiti fyrsta samstarfs frjálshyggjuflokkana beggja í borgarstjórn. Sameina átti REI og GGE svo maður rifji það upp, og þar kom einmitt Hitaveita Suðurnesja mjög svo við sögu. Hlutur OR í Hitaveitu Suðurnesja átti að renna inn í hið sameinaða félaga og GGE kæmi með sinn hlut einnig inn í þetta. Í kjölfarið átti einnig að gleypa hlut Hafnarfjarðarbæjar af hinu sameinaða fyrirtæki og athyglisvert er að skoða það sem stendur í frétt um óánægju Hafnfirðinga með þetta:

"Í tilkynningu sem Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og stjórnarformaður Hitaveitu Suðurnesja, sendi frá sér í gær kemur fram að samið hafi verið við Reykjavík Energy um að stofnað yrði sérstakt félag um dreifikerfið sem yrði í meirihlutaeigu Reykjanesbæjar, og annað um virkjanirnar sem yrði í meirihlutaeigu Reykjavík Energy. Fyrirtækinu verði því skipt upp í tvö félög."

Kunnuglegt er það ekki? Í dag er nefnilega staðan sú að Hitaveitu Suðurnesja var gert samkvæmt lögum að skipta upp í tvö fyrirtæki og þar af er annað þeirra, HS Orka komið i meirihluta-eigu Geysi Green Energy.

En aðeins meira um REI-málið því þegar meirihlutinn sprakk og Björn Ingi rölti út með rýtingasettið sitt fræga, þá hafði Sjálfstæðisflokkur náð þeim sáttum á milli sín að selja átti REI til einka-aðila með hlut HS og hugviti starfsmanna til áratugs eða tveggja innanborðs, bara ekki til FL Group því þeir voru ekki "réttir" aðilar að mati stuttbuxnagengisins stórvarasama.

REI fór fjandans til og ekki var hugað að einka(vina)væðingu á nýjan leik fyrr en kreppan skall á. Þá var þann fyrsta desember 2008 Hitaveitu Suðurnesja skipt upp í tvö félög HS Orku og HS Veitu, og stuttu síðar þá tilkynnti Árni Sigfússon það að sveitarfélögin ættu að kaupa landið af HS Orku og leigja þeim það til baka. Í framhaldi kom stjórnarformaður OR og tilkynnti með frjálshyggjuhreim það i miðjum hasar stórviðburða að OR ætlaði sér að losa sig við hlutinn í HS-fyrirtækjunum tveimur. Svo líður fram á sumar og Reykjanesbær sem er í stórum fjárhagskröggum selur hlut sinn í HS Orku til Geysi Green Energy, fyrirtæki sem er í reynd gjaldþrota(skuldar víst 23 milljarða en er haldið á lifi af bönkunum) og kaupin með fjármögnun frá óþekktu kanadísku fyrirtæki sem kallast Magma Energy sem myndi eignast um 10% í GGE fyrir greiðann. Magma er sama fyrirtæki sem sagðist ekki vilja hafa ráðandi hlut en hefur nú boðið í hlut OR og vill eignast ráðandi hlut í HS Orku nú sem myndi þýða að HS Orka yrði komin í hendurnar á einka-aiðlum að mestu leyti.

Skoðum aðeins þessi kostakaup öll sem Magma og GGE eru að fá. Samningurinn sem GGE fékk var ansi góður að mörgu leyti eða svo maður rifji upp úr annari bloggfærslu:

"Þá er reyndar áhugavert að skoða hvernig um var samið um greiðslu eða eins og segir hér í frétt Eyjunnar:

"Samkvæmt frétt um drögin á á vb.is verða þrír milljarðar króna greiddir með peningum, fjórir milljarðar með hlut GGE í HS Veitum og sex milljarðar með skuldabréfi sem greiðist á 7 árum. Þá felur samkomulagið í sér að Reykjanesbær kaupir landsvæði og auðlindirnar af HS Orku fyrir 1,3 milljarða króna. Á móti fær bærinn auðlindagjald sem getur numið allt að 90 milljónum króna á ári."

Sjáum nú til, skoðum þetta betur. Bærinn endar í raun með 1,7 milljarð í peningum, HS Veitu-hlutinn, skuldabréf og auðlindirnar sem skila samkvæmt auðlindagjaldi til bæjarins 90 milljónum á ári max. 90 milljónum af fyrirtæki sem veltir milljörðum á hverju ári samkvæmt ársreikningi?"

 Það sem komið hefur svo í ljós síðan ég ritaði ofangreint er að tekjur Reykjanesbæjar af þessari eign sinni voru eitthvað meiri áður en Sjálfstæðisflokkurinn tók til við að keyra fyrirtækið í kaf með klassískri aðferð frjálshyggjunnar, þ.e. reka það svo illa að sala er réttlætanleg, en áður var fyrirtækið að skila á annað hundrað milljóna í hagnað líkt og einhver benti á.Einnig má benda á það að HS Orka ætlar sér nú að margfalda orkuframleiðslu til frambúðar þrátt fyrir að þeir séu að fara framúr sér við Svartengi, svo framúr sér að það þurfti víst að grípa í taumana um daginn.

Skoðum svo hvað Magma/Geysir Green fá út úr kaupunum:

  • Afnotarétt til 65 ára framlengjalegan til 130 ára
  • Talsverð áhrif á atvinnusköpun á svæðinu og í raun geta ákveðið hverskonar starfsemi þrífst.
  • Ódýrar auðlindir á útsöluverði með kúluláni til 7 ára á mjög lágum vöxtum og á mun hagstæðara verði en í Bandaríkjunum t.d. 

Hvað fá svo sveitarfélögin út úr þessu braski öllu? Það er góð spurning en á fljótt litið hallar ansi á þau:

  • Reykjanesbær eignast HS Veitu að meirihluta
  • Reykjanesbær fær pening til að setja inn í nær því gjaldþrota sveitarfélag
  • Reykjanesbær fær örlítið fé á hvejru ári með auðlindagjaldi
  • Reykjanesbær missir afnotarétt á auðlindum sínum til 130 ára
  • Reykjanesbær tapar öllum tekjum af orkusölu til nýs álvers, gagnavers og annars iðnaðar til frambúðar, og öllum hagnaði af orkusölu.
  • OR fær 3,7 milljarða inn í reksturinn.
  • OR veitir kúlulán með einstaklega lágum vöxtum til 7 ára með veð í hlutabréfum. Miðað við verðbólgu og fleiri þætti þá má reikna með að OR stórtapi með því að veita þetta kúlulán sem gæti farið svo að þegar búið er að þurrka auðlindina upp þá geti menn skilað hlutabréfunum.
  • OR selur hlutinn í HS Orku með tapi eða á 6,7 kr. hlutinn í staðinn fyrir 7,0 hlutinn sem keyptur var af Hafnarfjarðarbæ.
  • Stjórn OR missir af hagnaði orkusölu vegna nýs álvers, gagnavers og alls hagnaðs í raun.
  • Neytendur munu uppskera hækkandi orkuverð, skert lífskjör enn frekar og jafnvel orku- og vatnsskömmtun sé miðað við reynslu annara landa af svipuðum hlutum.
  • Þjóðin öll glatar yfirráðarétti yfir einni af auðlindum sínum næstu 130 árin og jafnvel til frambúðar ef auðlindin skyldi hverfaá þeim tíma.

En hugleiðum fleiri þætti með þetta allt. Skoðum t.d. Reykjanesbæ og ástarsambandið við Geysi Green Energy. Einn af stærstu eigendum GGE er Glitnir sem á útrásartímanum var umsvifamikið í samstarfi við Reykjanesbæ. Reykjanesbær rekur fyrirtækið Fasteign til helminga við Glitni og er hlutverk þessa fyrirtækis að eiga og reka þær fasteignir sem bærinn þarf að nota. Virðist einnig standa styr um það félag innan bæjarfélagsins ef marka má þessa frétt hér. Glitnir var á tímum REI og einkavæðingar hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja í aðaleigu Milestone sem bróðir bæjarstjórans starfaði fyrir sem forstjóri SjóVá(og síðar meir í félagi við bróðir fjármálaráðherra tengdu fasteignum á Keflavíkkurflugvelli) og svo hinsvegar FL Group sem var einnig stór hluthafi í GGE þá. Einhvern veginn virðist þarna suður með sjó kristallast kunningjaklíkutengslin viðskiptalífs og stjórnmála sem kristallast í skúffufyrirtæki spillingarinnar sem staðsett er á Háaleitisbraut, nánar tiltekið í Valhöll.

Skoðum aðeins aðra hluthafa í GGE einnig.  Þar er Atorka hf. sem Glitnir eða Íslandsbanki eins og hann kallast í dag, á hlut í. Fl-Group eða Stoðir eiga þarna einnig hlut og svo má benda á að Landsbankinn á þarna einnig hut í gegnum eignarhaldsfélag erlendis og svo Horn fjárfestingafélag sem var stofnað til þess að sjá um hlutabréfa-eign Landsbankans sem fluttust yfir í Nýja Landsbankann. Gaman að geta þess einnig að innan þessara banka virðist minnst hreinsun á fólki tengdu hruninu og óeðlilegum viðskiptaháttum farið fram.Stærsti hluthafi í Atorku eru svo Þorsteinn Vilhelmsson í gegnum mismunandi félög og annar smærri er forstjóri Atorku, Magnús Jónsson einnig í gegnum mismundi félög. 

 Þriðji stærsti hluthafinn samkvæmt heimasíðu GGE er svo VGK-Invest eða verkfræðistofan Mannvit. Það sem er þó athyglisvert við VGK-Invest eru eigendur þar og það að VGK Invest tengdist einnig REI í gegnum 2% hlut. Þar má nefna fyrirtækið Landvar ehf. sem á um 35% hlut í VGK Invest en þetta fyrirtækja er í eigu sívinsælla sprelligosa sem hafa týnst um tíma eða Finnur Ingólfsson og félagar í S-hópnum, þeir Helgi Guðmundsson og Kristinn Hallgrímsson, líkt og bent er hér á í frétt DV um GGE frá því í sumar. En það er meira athyglisvert í þessari frétt um önnur tengsl tengd Glitni eða eins og segir hér:

"Árni Magnússon, fyrrverandi ráðherra og framsóknarmaður, hefur afskipti af framtíð GGE sem starfsmaður Íslandsbanka. Auk þess er Vilhelm Þorsteinsson yfirmaður fyrirtækjasviðs bankans, en hann er sonur Þorsteins Vilhelmssonar, aðaleiganda Atorku, stærsta hluthafa GGE. Hluthafar í VGK-Invest og Atorku hafa því bæði ættar- og flokkstengsl inn í Íslandsbanka."

 Til upprifjunar má minnast þess að Árni Magnússon var ráðinn þarna inn í Glitni á sínum tíma til að leiða orku-útrás fyrirtækjasviðs og Vilhelm þessi komst einnig í fréttir fyirr risakúlulán upp á 800 milljónir í gegnum eignahaldsfélag sitt AB154 ehf. Einnig er gaman að geta þess svona í framhjáhlaupi að um svipað leyti og Bjarni Ármanns og Hannes Smárason héldu fræga kynningu á REI, þá stóðu Árni Magnússon og Lárus Welding einnig í ströngu í New York við kynningu á orku-útrás Glitnis sem var æði vegleg eins og lesa má hér.

Kíkjum aðeins á OR þá og hverjir tengjast þessari sögu allri í gegnum REI og nú HS Orku-einkavæðinguna. Þar er bæði á ferð borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar líkt og áður en þar eru einnig menn á borð við Hjörleif Kvaran sem var stór leikandi í REI-málum öllum(tók þátt í ráðningu Bjarna Ármanns m.a.) eins og má sjá hér í grein Péturs Blöndals í bloggfærslu Láru Hönnu. Einnig tengdist OR og REI, maður að nafni Ásgeir Margeirsson sem var eitt sinn aðstoðarforstjóri OR og hafði svo mikinn velvilja borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að hann gat heimsótt Guðlaug Þór Þórðaróson á sjúkrabeð til að ræða það að taka þátt í stofnun GGE á milli jóla og nýárs, eða um svipað leyti og FL Group millifærði inn á reikning Sjálfstæðisflokksins. Ásgeir þessi endaði sem forstjóri Geysi Green Energy síðar.

Þegar maður lítur yfir sviðið þá fer maður að hugsa um hverjir eru búnir að vera persónur og leikendur í þessu öllu frá því að hlutur ríkisins í HS var einkavæddur og ágætt að búa til lista yfir hverjir koma við sögu:

  • Árni Sigfússon og bæjarstjórn Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ
  • Hjörleifur Kvaran
  • Guðlaugur Þ. Þórðarson
  • Árni Magnússon
  • Bjarni Ármannson
  • Hannes Smárason
  • Ásgeir Margeirsson
  • Finnur Ingólfsson og S-hópurinn
  • Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar
  • Stjórn OR sem er að góðum hluta skipuð Framsóknar og Sjálfstæðismönnum.
  • Einkavæðingarnefnd með yfirumsjón fjármálaráðherrans Árna Matt og viðskiptaráðherrans Jón SIg en hún var skipuð eingöngu fulltrúum Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.

Ég veit ekki um ykkur en maður byrjar að leggja saman tvo og tvo ósjálfrátt og komast á þá skoðun að þarna sé taka tvö á REI-málinu í gangi, með fulltingi hrunflokkana tveggja, og ný svikamylla sett á sviðið.  Þegar maður lítur á það einnig að eignarhald Magma er óljóst, maður veit ekki hverjir standa á bak við það eða hverjir koma þar nálægt, þá byrjar maður að fyllast óhugnanlegum gruni og ekki bara þeim gruni sem ég reifaði eitt sinn, að þetta tengdist endurkomu Bjarna Ármanns til landsins, heldur að þarna sé á ferð tilraun útrásarvíkinganna siðblindu að hætti rússnesku oligarkanna, til að nýta sér ástandið til að hagnast óhemjulega á meðan þjóðinni blæðir út fyrir þeirra tilstuðlan. Og svo þegar bent er á það á vefsíðu sem kallast Independent Icelandic News að Halldór J. Kristjánsson sé farinn til Kanada til að vinna við fjárfestingar á orkusviði, þá byrjar hrollurinn að læðast upp bakið. Það er nefnilega einnig tekið fram að hann tengist þessum "viðskiptum" á Suðurnesjum.

Því meir sem maður horfir á þetta mál því meira tel ég að þetta verði að stöðva með öllum tiltækum ráðum og ég ætla að skora á fólk að gera það sem Lára Hanna Eiríksdóttir hvetur til, þ.e. að senda Steingrími J. Sigfússyni póst og biðla til hans um að koma í veg fyrir þetta og svo hinsvegar að senda þingheimi póst og biðla til þeirra um að hætta að vera skúffufyrirtæki útrásarvíkinga við Austurvöll og taka sig saman um að koma í veg fyrir að auðlindirnar sem ÞJÓÐIN á, verði komið í hendurnar á óprúttnum viðskiptamönnum af útrásartagi og tryggja að hið opinbera sjái um eignarhald og rekstur á orku-auðlindum okkar hvort sem það þurfi að fara í þjóðnýtingu til að bjarga þeim úr klóm frjálshyggjunnar eður ei. 

Eða viljum við glata öllu okkar, því sem gæti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar, úr höndum almennings og þjóðarinnar allar til vafasamra fjárfesta og fjárglæframanna með tilstuðlan tveggja gerspilltra flokka? Ég veit allavega hvort ég vill. Orkan er okkar allra, ekki eingöngu þeirra sem eiga fé eða stjórnmálaflokkog það er okkar að tryggja að við, börn okkar, barnabörn og þjóðin öll hafi yfirráðarétt og nýtingarrétt á henni til framtíðar.

Lærum af reynslunni, brennum okkur ekki á sömu mistökum og aðrar þjóðir, brennum okkur ekki enn eina ferðina á tilraunum frjálshyggjunnar til að ræna okkur verðmætunum og komum í veg fyrir þetta.

 Að lokum vill ég benda fólki á það sem Hannes Friðriksson og Lára Hanna Einarsdóttir hafa skrifað um málin.

 

 

 

 


mbl.is Upplýsandi fundur með Magma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánabók Kaupþings: Illir kostir Kaupþings, hugleiðingar um lögbannið og stóra, skuggalega myndin

Þegar fréttir af lánabók Kaupþings dundu yfir mann og lögbannið var skellt á fréttir RÚV vegna fréttaflutnings úr lánabók Kaupþings sem hafði verið sett á vefinn Wiki-Leaks, þá áttaði ég mig á einu. Ég er ekki reiður lengur, ég er orðinn dofinn yfir hverri einustu fjöldagröf fjármálafrjálshyggjunar sem opnuð er úr rústum Fjórða Ríkis Frjálshyggjunar. 

Kannski hjálpar það þó til að sjá hlutina á fleiri en einn hátt, að vera laus við reiðina og vera orðinn svellkaldur yfir öllum þessum óhugnaði sem 18 ár frjálshyggju Davíðs Oddsonar og náhirðar hans, skildi eftir sem minnisvarða um hluti sem mega aldrei endurtaka sig aftur.

En hvað um það, ég ætla að hætta mér út beint út í stórskotahríðina fyrst og koma Kaupþing örlítið til varnar í upphafi. Ég held nefnilega að þeim hafi ekki verið á öðru stætt en að krefjast lögbanns á frétt RÚV með tilliti til starfsemi þeirra. Í lánabókinni sem birtist á Wikileaks, er nefnilega ekki bara að finna upplýsingar um Exista, Bakkabræður og annan óþjóðalýð, heldur einnig fara þarna út upplýsingar um fyrirtæki sem eru heiðarleg, stunda eðlileg viðskipti og hafa í raun ekkert erindi sem fréttamatur né eiga erindi út á við, þ.e.a.s ef allt var eðilegt og því ekki óeðlileg ástæða fyrir lögbannskröfunni til að geta haldið andlitinu gagnvart viðskiptavinum sínum. Önnur ástæða sem ég sé einnig sem forsendur fyrir lögbannskröfu, er að þessi bévítans bankaleynd myndi gera Kaupþing skaðabótaskylt ef þeir reyndu ekki að gera neitt í málunum. Þá hefðu blankir Bakkavarar-bræður, svikamyllan Exista o.fl. getað farið í mál og náð fé til sín(eins og þeir hafi ekki hirt nóg) í gegnum lagalegan grundvöll. Einhvern veginn held ég að maður yrði einstaklega ósáttur við það og vonandi nær þetta að slá það vopn úr höndum þeirra. Þetta var því val á milli að "damned if we do, damned if we don't" kosts.

Nú veit ég að reiðin hefur fengið einhver augu til að tútna út yfir því að ég sé með vörn fyrir Kaupþing. Skiliningur á hversvegna gripið er til svona aðgerða, gerir mann ekki sjálfkrafa samþykkan þeim og ég er engan veginn sáttur við lögbannið á fréttaflutning RÚV því þetta eru upplýsingar sem eiga fullt erindi við almenning, þ.e.a.s. upplýsingar um hrunvaldana. Enda viðbröðgin allstaðar sú sömu, harkaleg með hvatningu til "Streisand effect".Þó er eitt jákvætt við þetta lögbann, nú munum við fáið út úr því skorð fyrir dómi, hvort bankaleynd sé ofar almannahagsmunum, hvort bankaleynd sé ofar réttlæti og hvort bankaleynd sé ofar siðferði og glæpum.

En það er samt svo að þegar maður hættir að einblína á lánabókina sjálfa, þá kvikna ýmsar spurningar um lögbannið. Hveresvegna bara RÚV? Hversvegna ekki hinar stöðvarnar? Hvað var það í frétt RÚV sem gerir þá að sérstöku skotmarki? Maður gæti velt fyrir sér hvort það sé vegna þess að þetta er prófmál, hvort þetta sé vegna þess að Kaupþing var þarna með málamyndargjörning eða það sem ég og fleiri tókum efitr: Kristinn Hrafnsson talaði um heimildir um gífurlega fjármagnsflutninga hjá Kaupþingi og að á næstu dögum yrði meira sagt frá þeim, nokkuð sem Hörður Svavarsson veltir ágætlega upp í blogg-færslu sinni.Heimildr Kristinn virðast vera nokkuð fleiri en upplýsingarnar úr lánabókinni.

En frétt RÚV er ekki það eina sem vakti upp spurningar og hvort meira væri í gangi. Frétt DV á föstudagskvöldið um að lánanefndin hefði afgreitt þessi mál sama dag og þegar ákveðið var að fella niður ábyrgðir starfsmanna Kaupþings, fengu ákveðnar bjöllur til að hringja í hausnum í mér. Í kjölfarið fór ég að grufla og setja saman stærri mynd sem er örugglega ekki tæmandi. Það flaug nefnilega upp í hausinn á mér allar þær fréttir sem komið hafa fram um millifærslur o.fl. og ég ákvað að skoða einn vinkil á þessu, ekki upphæðirnar, heldur tímalínuna í kringum þetta.Ef við byrjum á að líta á tímalínu frá byrjun september:

  • 2. september: Björgvin G. Sigurðsson og Baldur Guðlaugsson sitja fund í London varðandi bankakerfið og áhyggjur breskra yfirvalda af Landsbankanum í London lýst þar yfir.
  • 11. september: Sigurður Valtýsson forstjóri Exista, færir eignarhlut sinn í félag á Tortola-eyjum. Stuttu eftir hrunið sjálft skráir hann húsið yfir á konuna.
  • 7-16. september(hugsanlegt tímabil).:Baldur Guðlaugsson ráðuneytistjóri selur bréf sín í Landsbankanum. Sumar fréttir segja að salan hafi farið fram nokkrum dögum eftir Lundúnar-fund, aðrar tveimur vikum.
  • 22. september: Sheik Al-Thani kaupir 5% í Kaupþingi.
  • 23. september: Hæsta millifærsla Bjarna Ármanns út úr landi. Hinar millifærslurnar ásamt millifærslum Lárusar Welding, voru ekki dagsettar í fréttum.
  • 25. september: Lánanefnd Kaupþings afgreiðir lán og afskrifar önnur, til útrásarvíkingafyrirtækja. Samþykkt í stjórn Kaupþings að ábyrgðir starfsmanna á lánum falli niður. Einar Sveinsson fyrrum stjórnarmaður í Glitni, millifærir 170 milljónir af reikningi sínum til Noregs.
  • 29. september: Ríkið lýsir því yfir að ætlun sé að yfirtaka Glitni og kaupa 75% hlut í bankanum.
  • 2. október: Ólafur Ólafsson lætur Kaupþing í Lúxemborg kaupa ríkiskuldabréf fyrir fé sitt í Lúxemborg og hefur verið að koma fé út úr landi um svipað leyti.
  • 3. október: Breska fjármála-eftirlitið gerir sérstakar ráðstafanir til að tryggja að innlagnir í Singer&Friedlander fari ekki inn í bankann, heldur á serstakan reikning. Heritable, dótturfélagi Landsbankans einnig gert skylt að gera hið sama. Imon-félag Magnús Ármanns kaupir í Landsbankanum.
  • 6. október: Kaupþings-menn fara inn í Seðlabankann og fá 80 milljarða króna lán. Sama dag eru Singer & Friedlander og Heritable sett í gjörgæslu breskra yfirvalda
  • 7. október:Heritable fært undir hollenska bankann ING.Seðlabankinn festir gengið við krónuna og upphefst miklar umbreytingar úr krónum í evrur innan bankanna. Landsbankinn yfirtekinn.
  • 8. október: Seðlabankinn heldur fast við gengisfestinguna allt þar til um kvöldið. Hryðjuverkalög sett á Landsbankann og Kaupþing Edge fært undir ING-bankann.Glitnir yfirtekinn
  • 9. október: Kaupþing yfirtekið af ríkinu.
Hvað hefu okkur verið svo sagt í fréttum til viðbótar um millifærlsur o.fl.(ótímasett)?
  • Björgólfs-feðgar, Karl Wernersson, Magnús Þorsteinsson, Samson og Milestone fluttu fé út úr landi.
  • Bakkavör flutti frá London til Reykjavíkur 130 milljónir punda í byrjun október. Þessi fjármagnsflutningur er llíklega einn af orsakavaldöldum hryðjuverkalaga Breta.
  • Fleiri menn í viðskiptalífinu(fyrir utan Kaupþings-menn) fluttu eigur sínar í einkahlutafélög eða yfir á konuna fyrir hrun. Ef fólk hefur orku í að finna það út hverjir það voru, endilega komið því á framfæri.
  • Kaupþing í Lúxemborg, Tortola-eyjar o.fl. lönd, eru vinsælir áfangastaðir fyrir þetta þar sem rík krafa um bankaleynd, gerir auðveldara fyrir menn að fela eignarhald og hvert peningar fara.
  • Hlutabréfakaup Al-Thani og Imons, félags Magnúsar Ármannsonar, eru þegar komin í rannsókn sem sýndarviðskipti.
  • Nokkrum sinnum áður hafa birst fréttir af því að óeðlilegir millifærslur hafi átt sér stað hjá Kaupþingi í kringum hrun, sem eru í rannsókn hjá rannsóknanefndinni og saksóknara.
  • Glitnir hefur ráðið sérfræðifyrirtækið Kroll til að kanna hugsanlegar óeðililegar millifærslur fyrir hrun.

Ef við skoðum þetta allt saman(vantar reyndar peningaflutninga af IceSave inn í myndina), þá er eitt sem stingur mann strax. Snemma í september voru menn byrjaðir að bjarga egin skinni, selja bréf, losa um eigur og flytja fé út úr landi. Upp úr miðjum september virðist vera brostinn á almennur fjármagnsflótti útrásarvíkinga, bankamanna og annara með innherja-upplýsingar ásamt því að allavega tvenn sýndarviðskipti eru sett á svið. Þetta er bara það sem við vitum af, nota bene, við höfum ekkert fengið enn af ráði úr Glitni og Landsbankanum sem slegin hefur verið þagnarmúr í kringum. Persónulega grunar mig að mesti óhugnaðurinn leynist í Landsbankanum og ekki bara IceSave, heldur einnig þar sem Björgólfs-feðgar réðu þar ríkjum og stjórnsýsla Sjálfstæðisflokksins var hvað í mestu ástarsambandi þar við, enda bankinn atvinnumiðlun fyrir margan SUS-arann og bankastjórnin tengd beint inn í æðstu stjórn landsins. Samkvæmt heimildarmanni sem ég hef enga ástæðu til að rengja, þá átti þar nefnilega líka sér stað sú fyrirgreiðsla til stjórnmálamanna sem hefur veirð minnst á, og gæti átt sinn þátt í því að algjör skjaldborg hafi verið slegin um þann banka til verndar starfsferlum margra. Þögn hefur svo ríkt um Glitni síðan leki varð þar síðasta haust og gripið var til ráðstafana til að koma í veg fyrir slíkt. 

Svo má einnig benda á til viðbótar, að allir þessir aðilar: Kaupþings-klíkan, Landsbanka-lýðurinn og Glitnis-gengið, voru að lána hvor öðrum, halda saman upp verði á hlutabréfum bankanna sinna og stunduðu allskonar óeðlilega viðskiptahætti sem miðuðu að því að viðhalda blekkingunni. Því er mögulegt að þegar einhver úr þessum hópi hafi fengið upplýsingar um að öll spilaborgin hafi verið að fara að hrynja, að bræðralagið hafi í anda skyttnana eða einn fyrir alla, allir fyrir einn, hafi gilt framar öllu og boðin gengið út: Þetta er búið, læsið neðri þilförunum svo almenningur komist ekki í björgunarbátana sem ætlaðir eru okkur einum.

En þetta vekur líka upp ýmsar spurnignar til viðbótar, ekki bara ályktanir. Hvaða vitneskja olli þessum fjölmenna flótta og uppnámi fyrir hrun? Lak eitthvað út úr stjórnsýslunni eða frá stjórnmálamönnum sem áttu ýmislegt undir, um að aðgerðir væru í vændum? Hveersvegna gripu FME og Seðlabanki ekki til aðgerða? Hverjir fleiri losuðu um fé sitt úr innstu röðum stjórnsýslunar og stjórnmálaflokkana? Höfðu ráðherrar, þingmenn, ráðuneytistjórar og aðrir valdamenn upplýsingar um hvað væri í gangi innan bankanna og sýndarviðskipti færu þar fram? Og svo hverjir sátu í lánanefndum bankanna?

Mörgum spurningum og hlutum er hægt að velta upp til viðbótar en þetta ætti að nægja að sinni. Þó er eitt atriði sem rifjaðist upp fyrir mér við þessa litlu samantekt og upplýsingaleit og það er þetta hér:

  • SKY sjónvarpsstöðin kom fram með umfjöllun um að Ísland hefði veirð notað sem peningaþvottastöð fyrir rússnesku mafíuna. Einnig var skrifuð grein þar sem fjallað var um þetta í rússnesku blaði og birtist hún víða. 

Er þetta ekki mál sem ætti að rannsaka einnig frekar? Gæti peningaþvætti tengst fjármagnsflutningum?

Að lokum, þá býð ég ykkur upp á gott grín í boði Samtaka atvinnulífsins: frétt um morgunverðarfund SA sem hafði yfirskriftina:

Traust í viðskiptalífinu - Getur gott siðferði borgað sig?


mbl.is Netverjar æfir yfir lögbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðmannamillifærslurnar og áhugaverður fréttaflutningur Morgunblaðsins

Einhvern tímann var sagt, að oft á tíðum væri það athyglisverðara hvað Morgunblaðið segði ekki frekar en hvað það birti í fréttum sínum. Fréttir gærdagsins um millifærslur auðmanna og bankamanna á milli landa er e.t.v. ágætis dæmi um það þar sem tvennar fréttir birtust, önnur á RÚV og svo hinsvegar fréttin sem þessi yfirlýsing tengist, á Stöð 2.

Lítum aðeins fyrst á þessa frétt um Björgúlfs-feðga, Magnús Þorsteinsson, Karl Wernersson, Milestone og Samson. Fréttin birtist á Stöð 2 um 18:30 en á vef Morgunblaðsins birtist ekki neitt fyrr en um 5:30 þar sem Morgunblaðsfréttin um málið er birt en hún birtist einnig í blaði dagsins, ekki sérlega áberandi þó. Er titill hennar eftirfarandi:

"Björgúlfs-feðgar segja frétt Stöðvar 2 ranga"

Ef fréttin er lesin svo, er lítið sagt um hvað kom fram í frétt Stöðvar 2, heldur aðeins koma fram sjónarmið auðmannana. Frekar óljóst og loðið allt saman og ef maður væri nú svo heftur í nútíma samfélagi að aðeins lesa matreiðslu Morgunblaðsins og þeim FL-okksins dindlum sem stýra þar á bak við tjöldin, þá væri maður eitthvað að klóra sér í hausnum.

Næsta frétt um þetta mál birtist svo kl. 12:04. Er það yfirlýsing frá Magnúsi Þorsteinssyni þar sem hann segist vera voða svekktur og sár, heimtar afsökunarbeiðin og er óhress.Ber fréttin titilinn:

"Segir frétt Stöðvar 2 ranga"

Eitthvað meir er hægt að glöggva sig á málinu, en samt er ekki komið fram nákvæmlega um hvað frétt Stöðvar 2 fjallaði um í heild sinni eða hvað Stöð 2 segir. Það skal tekið fram að Stöð 2 lýsir því yfir um svipað leyti að þeir standi alveg við fréttina um peningamillifærslurnar sem Morgunblaðið hefur ekki enn hirt um að segja okkur nákvæmlega frá.

Aðeins 10 mínútum síðar er birt tilkynning frá Straumi um að þeir væru óhressir með þessa frétt og ætluðu að leita til lögfræðinga sinna.Er titill fréttarinnar mjög eftirtektarverður og grípur strax lesandann heljartökum:

"Straumur leitar til lögfræðinga vegna fréttar"

Í þessari frétt kemur þó fram í einni setningu um hvað frétt Stöðvar 2 snérist um og þeir sem aðeins treysta á mbl. hefðu nú kinkað kolli og áttað sig á hvað væri í gangi. Því miður var fréttin fljót að hverfa í hít viðskiptafrétta svo ekki hefðu margir náð að glöggva sig á samhengi hlutanna.

Á öðrum vef-miðlum er vítt og breitt talað um málið, m.a. rætt við fjármálaráðherra, FME, skilanefnd Straums o.fl. en á Morgunblaðinu ríkir þögn að hætti húsins. Mætti halda að gamlir kaldastríðsdraugar frá Háaleitisbraut 1, hefðu nú hrekkt eitthvað tölvukerfið þegar kom að svona hlutum því það er ekkert minnst á þetta mál á einn eða annan hátt fyrr með þessari yfirlýsingu Björgúlfs Thor sem hér er tengt við og er hún með eftirfarandi stríðsyfirlýsingu:

"Björgúlfur Thor: Skipulagður óhróður, véfréttir og lygar"

Hefur hann fengið að vera framarlega í sessi hér á forsíðu mbl.is enda var nú faðir hans nú fyrrum eigandi blaðsins og örugglega margir sem hugsa hlýtt til þeirra ára, hvort sem það voru gamlir jaxlar eða kaldastríðshermenn sem dáðu þá feðga ofan af Háaleitisbraut 1. En hefur þó ekkert sést til neinnar tilraunar til að draga fram fleiri hliðar en burgeisana sem Sjálfstæðismenn kiknuðu í hnjánum yfir,  líkt og ástfangin skólastelpa fyrir framan draumaprinsinn. Hver veit, kannski eru þeir feðgar að fara að stökkva til með smáfjármagn til handa Morgunblaðinu, svo hægt sé að leyfa Davíð vini þeirra að setjast í ritstjórastól þar til eftirlaunin kalla?

En svo eru það hinar millifærslurnar, þessar sem RÚV sagði frá.  Nákvæmlega kl. 18:24 að staðartíma þá laumar Morgunblaðið þeirri frétt inn á mbl.is að Bjarni Ármanns og Lárus Welding, hafi nú millifært milljarða og ber fréttin titilinn:

"Millifærðu hundruð milljóna á milli landa"

Er fréttinni haglega komið fyrir undir viðskipti fremur en undir innlendum fréttum, þó að þetta sé stórfrétt að mörgu leyti. Er titillinn þó meira grípandi og segir mun meira í frétetinni hvað hafi verið gert heldur en þegar blaðamenn og ritstjóri mbl.is og Morgunblaðsins voru að væflast með burgeisana sem bjórseðla þóttust eiga, þá Björgúlfsfeðga. Eina sem fréttist um það mál í dag, er svo yfirlýsing frá Bjarna Ármannssem birt er að sjálfsögðu undir Viðskiptum og ber þann grípandi titil:

"Bjarni Ármanns: Eðlileg fjárstýring"

Reikna má með að hver einasti maður á landinu hafi stokkið til og lesið yfirlýsinguna sem hvarf fljótt inn í hyldýpi viðskiptaheimsins líkt og skortstaða bankanna eða millifærslur sem ekki máttu sjást. Ekki sást reynt að fá fleiri álit og/eða fleiri vinkla á fréttirnar, heldur ber þar að sama garði og með bjórfeðgana.

En það er meira við fréttaflutninginn af Glitnis-bankastjórunum. Þar er nefnilega ekki öll sagan sögð og líkt og áður þá eru þeir sem treysta aðeins á Morgunblaðið varðandi fréttaflutning, með skerta sýn og jafnvel búnir gleraugnalausir vegna ryksins sem fjölmiðillinn þyrlar upp. Það sem vantar inn í söguna er að í frétt RÚV. að það vantaði Harry Lime í söguna Fyrir ykkur sem ekki þekkja kvikmyndasöguna þá er Harry Lime Þriðji Maðurinn hans Orson Welles. Og hver er þessi Þriðji maður sem ekki er til hjá Morgunblaðinu?

Einar Sveinsson heitir hann og var nú stjórnarmaður á sama tíma og Karl Weners, Hannes Smára o.fl. töffarar útrásarinnar. Einnig sat hann í stjórn Sjóva Almennra, Olíufélagsins, BNT og Icelandair þar sem hann tautaði um vonda kommúnista þegar Icelandair var yfirtekið.

Og hversvegna ætli Morgunblaðið hafi kosið að minnast ekki á hann?

Það skyldi þó ekki vera þó sú staðreynd, að hann Einsi er nú bróðir Benedikts, pabba formanns Sjálfstæðisflokksins, hans Bjarna Ben.

 

 

 

 

 


mbl.is Björgólfur Thor: Skipulagður óhróður, véfréttir og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

AK-72

Höfundur

AK-72
AK-72
Með óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...1212_913482
  • ...ner1_568492
  • ...rad-banner1
  • Screenshot

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 123092

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband