Hugleiðingar út frá Gay Pride og Biblíunni. Ekki fyrir fordómafulla trúarofstækismenn!

Einhverra hluta vegna í dag þá kom upp smáhugdetta í hausinn á mér, svona Eureka varðandi smá sérkennilegt mál tengt Biblíu-fræðum. Gæti hafa verið innblásin út af Gay Pride-deginm. Ég ráðlegg strangtrúuðum, fordómafullum einstaklingum að lesa ekki meir og lifa lengur í fáfræði fordóma sinna í sæluþví þetta gæti eyðilagt sýn þeirra á Biblíunni og rústað fordómum þeirra gagnvart samkynhneigðum. Örugglega argasta guðlast þar að auki í augum sömu fordómafullru einstaklingana.

 Ok.

 

Getið enn hætt við

 

Jæja, best að segja hvað heilinn á mér var að komast að.  Þetta voru nokkrir hlutir sem byrjuðu að tengja sig og tengjast getnaði Jesús.

1. María mey var hrein mey þegar hún varð ófrísk, semsagt að hvorki hún né Jósef þrátt fyrir að vera gift, höfðu greinlega ekki átt mök.

2. Hún missti ekki meydóminn við það að Guð fór upp á hana.

3. Fyrir utan það að vera argasta framhjáhald, þá er það nú einstaklega skrítið að Jósef gerir eki neitt í málunum, heldur bekynnir þetta með bros á vör og lætur líta út eins og þetta sé sonur hans öll þessi ár. Ekki eignast þau fleiri börn heldur.....ef ég man Biblíufræðin rétt  

Þegar maður spáir í þessum hlutum, þá fer að hvarfla að manni þessar ályktanir.

1. Hjónaband Maríu og Jósefs var hentihjónaband. Þau voru bæði samkynhneigð og voru í skápnum eða ætti maður kannski að segja jötunni? Þess vegna hafa þau ekki haft mök því kynhvötin og ástríðurnar hefðu nú átt að brjótast út hjá þessu unga, gifta fólki í bólförum og það ansi oft.

2. Guð getur með henni barn án þess að rjúfa meydóminn. Þarna dettur manni helst til hugar að Guð sé lesbía og átt þarna vingott með Maríu í einhverju fjárhúsinu. Síðan hafi einhver fornaldarleg gervifrjóvgun með gjafasæði(ég vill ekki einu sinni vita hvernig það fór fram) átt sér stað án þess að rjúfa meyjarhaftið.

Svo ananrs staðar er þetta nú með það að Jesús hafi aldrei verið við kvenmann kenndur og alltaf í hóp með 12 "lærisveinum". DO I HEAR Y-M-C-A,anybody?

Þegar maður spáir í þessu, þá hefur þetta verið falið afhómóphóbiskum biskupum og páfum í gegnum tíðina. Á sama tíma eru þeir að prómóta ýmiskonar kynferðislega bælngu sem innan veggja klaustra, bæði muka og nunnu, hefur brotist út í allskonar kynferðislegum athöfnum sem fengju Larry Flynt til að roðna. Og hvað er þetta með að hafa karlmenn og konur í sitt hvoru klaustrinu, hmmm, say no more, say no more, nudge, nudge. Kannski fengu munkanrir og nunnurnar að vita sannleikann um þetta og voru þannig nálægri Guði en aðrir?

Til haimingju með daginn annars, ágæta samkynhneigða fólk, og vonandi iðrast krikjan og hættir að fylgja mannana ákvörðunum og fylgir frekar Guði og leyfir ykkur að giftast þar innan veggja. Ef ekki, þá er spurningin með hvort allir þeir sem tóku þátt´i göngu í dag, segi sig ekki úr kirkju og söfnuðum þar til allir eru orðnir jafnir innan kirkjunari. Allir eru nefnilega jafnir í augum Guðs svo það er engin ástæða til þess að markaðssérfræðingar hans hér á jörðinni séu að mismuna fólki vegna sinna mennsku skoðana.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þegar þú þarft að réttlæta fyrir þér eða öðrum hvað þá öllum heiminum þá getur þetta ekki verið rétt.

stebbi (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 17:23

2 Smámynd: AK-72

Hmm, þetta er skrítin athugasemd þó mig gruni hvað þú sért að meina.

Má ekki alveg eins segja að réttlætingja svertingaja fyrir því að njota sömu mannréttinda og hvítir í BNA, hafi þá veirð röng? Eða þá réttlætingu fyrir því að konur fengju að kjósa, hafi verið einnig röng?

Þessir hópar þurftu nú að réttlæta fyrir sér og sínum ásamt öllum heiminum að þau ættu sama rétt og hvítir karlmenn t.d. og þessi réttindi þykja alveg sjálfsögð í dag

Eða ertu einnig á því að svertingjar og konur eigi ekki að njóta sama rétt og aðrir?  

AK-72, 11.8.2007 kl. 19:15

3 Smámynd: Geimveran

Djöfulli góðar pælingar

Kannski þetta sé bara málið

Geimveran, 17.8.2007 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AK-72

Höfundur

AK-72
AK-72
Með óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...1212_913482
  • ...ner1_568492
  • ...rad-banner1
  • Screenshot

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband