27.9.2009 | 12:19
Farinn með bloggið annað
Hef ákveðið að færa skrif mín annað vegna dráps náhirðarinnar á Morgunblaðinu sem trúverðugum fjölmiðli. Mun allavega um tíma rita bloggfærslur á þessum stað:
http://agnark.wordpress.com/
Bið ykkur vel að lifa.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
AK-72
Tenglar
Borgarahreyfingin
Kvikmyndir og því tengt
- Heimildarmyndaklúbburinn Hómer Félagskapur sem hittist til að drekka í sig fróðleik og bjór á þriggja vikna fresti
Project 100
- Heimasíða Project 100 Viltu vera einn af 100?
Bloggvinir
- don
- soleys
- tharfagreinir
- sigurgeirorri
- neddi
- smali
- omnis
- nanna
- baldurkr
- siggi-hrellir
- gorgeir
- paul
- geimveran
- skari60
- semaspeaks
- vest1
- thj41
- gudrunlilja
- zeriaph
- siggisig
- gudbjorng
- svatli
- athena
- ace
- ragnarb
- einarolafsson
- amadeus
- brell
- thorsaari
- tbs
- vilhjalmurarnason
- patent
- jennystefania
- drum
- folkerfifl
- larahanna
- ragnar73
- hildurhelgas
- ladyelin
- sigurduringi
- sij
- hedinnb
- valgeirskagfjord
- hehau
- baldvinj
- jonarnarson
- olinathorv
- saemi7
- agustg
- ingaragna
- liljaskaft
- astajonsdottir
- reisubokkristinar
- lehamzdr
- sparki
- malacai
- leifur
- evaice
- gus
- tryggvigunnarhansen
- kjarri
- vistarband
- fun
- einari
- spurs
- annaeinars
- gattin
- kaffistofuumraedan
- launafolk
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman að fylgjast með skrifum þínum og farnist þér vel á öðrum vettfangi og mun ég fylgjast með.
Árelíus Örn Þórðarson, 27.9.2009 kl. 13:03
Takk fyrir uppbyggileg skrif og góða viðkynningu. gangi þér vel.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.9.2009 kl. 13:23
Velkomin til okkar...
kv. gandri.wordpress.com
:)
Guðmundur Andri Skúlason, 27.9.2009 kl. 13:44
Ég fylgist með.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2009 kl. 13:52
Æææææ neeeeeiiiiiiii .... ekki faaaaraaaaa :(
Borat (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 14:33
Já, velkominn til okkar!
Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 15:01
Heill og sæll; Agnar - sem og, þið önnur, hér á síðu !
Agnar !
Kringumstæðurnar; hefðu mátt vera ákjósanlegri, svo sannarlega. Skil vel; þína afstöðu, eins og málum háttar nú, um stundir, þó,..... sjálfur hyggist ég þrjóskast við, hér á vef, um hríð.
Þakka þér; samskiptin, sem snerrur allar, hvar fjarri fór, að við værum alltaf samstíga, en komumst frá hverri orðræðu, með ágætri sæmd.
Farnist þér vel; á nýrri slóð, Agnar.
Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 15:38
Ég held að þetta sé misráðið það er einmitt þetta sem þeir vilja. Að öflugustu bloggararnir hverfi og náhirðar bloggarar taki yfir. En ég mun sakna skrifa þinna hér.
Finnur Bárðarson, 27.9.2009 kl. 16:10
Farið hefur fé betra
Jón Sigurðsson, 27.9.2009 kl. 16:49
Komið þið sæl; að nýju !
Kaldrani; Jóns Suigurðssonar, lýsir einkar vel, þýlindi 25 - mesta lagi 30% Íslendinga, hverjir auðsveipir fylgja illhryssingslegum yfirvöldum að málum, hverju sinni.
Má vera; að Jón sé þræll að upplagi - árþúsundin aftur, gott fólk.
Með beztu kveðjum á ný - öngvum; til Jóns Sigurðssonar, þessa /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 17:15
Sigurðssonar; átti að standa þar, víst.
ÓHH
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 17:16
Finnur, mjög góð ábending. Ég skil þá bloggara sem vilja vera hér áfram og ekki láta hrekja sig í burtu. Ástæðan fyrir því að ég fer er ekki bara að ég sé óánægður með ritstjórn og eigendur Árvakurs.
Fyrst og fremst er ég að fara því ég vil ekki éta úr lófanum á mönnum sem settu Ísland á hausinn og hafa rænt og ruplað þetta þjóðfélag.
Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 17:52
Náhirðin titrar náttúrlega af ótta við að nýja ritstjórnin á Mogganum fari nú að hræra upp í málum sem bætur lægju í þagnargildi.
Flosi Kristjánsson, 27.9.2009 kl. 18:17
Auðvitað bloggið þið þar sem það hentar ykkur, þar eru bloggvinirnir ykkar.
Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 19:28
Held að þessi flótti sé misráðinn þó skrímsladeildin hafi tekið málgagnið yfir. Það verður hætta á einsleitari umræðu í þeim netheimi sem er aðgengilegastur flestum.
Sú röksemd hefur komið fram að auglýsingatekjur af blogginu séu verulegar. Við því má bregðast með því að leiðbeina fólki hvernig það getur losnað við að sjá þessar auglýsingar í vafranum sínum (t.d. Firefox) og jafnframt að slíkar síður séu merktar á einhvern hátt.
Þessi umræða fór á flug þegar auglýsingar voru settar inn á sínum tíma - í óþökk margra.
Haraldur Rafn Ingvason, 27.9.2009 kl. 20:44
Ægivald þessa Davíð Oddssonar,er með ólíkindum.Hann virðist eiga inni greiða hjá hinum ótrúlegustu mönnum í þjóðfélaginu,það væri fróðlegt að getað litið í leyniskruddur hans,því eflaust á hann eftir að rukka inn hjá þeim sem hann hefir komið fyrir í hinum ýmsustu stöðugildum í þjóðfélaginu.Skyldi Davíð hugsa svona::Ef Berlusconi vinur minn getur þetta,að þá get ég það líka:: Vegir Davíðs eru órannsakanlegir. Hafðu þökk síðuskrifari fyrir dúndrandi góða pistla .1 Október er viðskiptum mínum við Morgunblaðið lokið eftir rúmlega 36,ára áskrift,og bless þá í leiðinni Moggablogg. STRÍÐSGLÆPAMAÐUR ER ORÐIN RITSTJÓRI MORGUNBLAÐSINS.(írak)
Númi (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 21:23
Hættu þá þessum sjálfspyntingum og lokaðu síðunni.
Kristinn Pétursson (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 21:46
Kristinn Pétursson,uppsögn á mbl og morgunblaðinu miðast víst við 1 Október,,,ert þú búin að segja MB upp:?
Númi (IP-tala skráð) 27.9.2009 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.