3.7.2008 | 20:24
Illska kerfiskalla
Ein mesta skömm okkar Íslendinga var þegar íslenskir stjórnmálamenn og kerfiskallar ákváðu að senda gyðinga aftur til Þyskalands þar sem þeirra beið ill meðferð og síðar meir dauðabúðir nasista. Eftir að örlög gyðinga urðu ljós eftir stríð, þóttust sömu menn lítið kannast við framferði sitt og að þeir hefðu ekki vitað að það yrði farið illa með gyðinga í Þýskalandi nasimans, jafnvel þótt það hafi frést af meðferðinni í Dachau og Buchenwald hingað til lands fyrir stríð og Kristalsnótt gerði heimsbyggðinni ljóst hvað var í gangi.
Þetta ofangreinda getur ekki annað en skotið upp í kollinn þegar kemur að máli Paul Ramses og fjölskyldu og framferði íslenskra stjórnvalda. Í stað þess að úrskurða um málið ákváðu kerfiskallar og lítlmenni, að betra væri að splundra upp fjölskyldunni og senda Paul til Ítalíu þar sem hann fer aftast í langa, langa, langa röð í fjansamlegu landi, þ.e.a.s. ef ítölsk stjórnvöld sem þykja ansi fjandsamleg innflytjendum, flóttamönnum og múslimum í dag, senda hann ekki beint til Kenýa þar sem hann verður líklegast færður upp að veggnum og hnakkaður. Við bætist svo að næsta skref er að senda konu hans til Svíþjóðar með sex vikna gamalt barn og allslausa og án eiginmannsins, þá get ég ekki annað en spurt hverskonar illmenni fara með völd á Útlendingastofnun? Eru menn gersamelga sneyddir öllu sem heitir mennska og mannúð þarna? Eru menn búnir að gleyma að það er til nokkuð sem heitir mannréttind, nokkuð sem ríkistjórnin ætlaði sér að vera meðal fremstu þjóða í framkvæmd á?
En svo veltir maður fyrir sér spurningunni með málsmeðferðina, ástæður og hvernig var staðið að henni. Paul kemur hér í desember og sækir um hæli. Kerfið dregur lappirnar og svarar honum ekki þrátt fyrir fjórar yfirheyrslur 'utlendingastofnunar yfir honum og óstaðfestar fréttir hér á blogginu segja að málið hafi veirð komið inn á borð utanríkisráðuneytis í mars. Skyndilega er svo ákveðið að taka ekki mál hans fyrir og hann sendur með hraði út úr landi og yfirklór byrjað til að reyna að breiða yfir ástæðurnar. Falið er á bak við að þetta sé lögmætt sem er klassík þegar kemur að réttætingu illverks kerfiskalla og vísað til Dyflinnarsamkomulags sem réttlætingu, samkomulags sem segir að ríki þurfi ekki að gera það sem var framkvæmt í morgun og nú að ekki væri hægt að fara yfir mál Pauls þar sem kona hans var ólöglegí landinu.....hvernig komst hún inn í landið ólöglega? Rann út dvalarleyfi hennar vegna seinagangs sálarlausra kerfiskalla? Ef svo er, hvers vegna á þá að refsa henni og Paul fyrir það?
Þetta er sú ástæða sem mér dettur til hugar, að Haukur Guðmundsson og aðrir starfsmenn 'utlenidngastofnunar hafi einfaldlega ákveðið að losa sig við Paul og fjölskyldu til að þurfa ekki að vinna vinnuna sína og biðjast afsökunar á seinaganginum, seinagangi sem virðist ekki vera til þegar kemur að því að redda ríkisborgararétt handa tengdadóttur ráðherra svo hún geti komist á námslán. Maður er nokkuð sannfærður um það að ef Paul hefði verið tengdasonur einvhvers ráðherrans, kannski Björns Bjarna sjálfs, þá væri hann kominn með dvalarleyfi, ríkisborgararétt og prófessorstöðu í Háskólanum við hliðina á Hannes Hólmsteini og það allt saman fyrir síðustu áramót.
Svo skjóta þó aðrar grunsemdir upp í kollinn á manni einnig þegar sést að Útlendingastofnun hefur stundað þetta grimmt á síðasta ári að senda fólk til annars lands og láta úrskurða um hælisleit þar, hvort þetta sé leynileg stefna Björns Bjarnasonar í innflytjendamálum þar sem notað eru brögð kerfisins sem fáir frétta af, til að hindra að flóttamenn komi til landsins. Eini munurinn kannski á þeim málum og nú, að þettta rataði í fréttirna.
Svo er líka þriðji möguleikinn, að Haukur GUðmundsson og Björn Bjarnason hafi einfaldlega fundið gamalt skilti sem nasistar gáfu íslenskum ráðamönnum til að hafa við vegabréfshliðið, í heimsókn sinni hingað. Þeir hafi ekki viljað henda því en ákveðið að breyta áletrunni og það sett upp á vegg í mötuneyti Útlendingastofnunnar með þessari áletrun:
SCHWARZE VERBOTEN!
Eiginkona Ramses ólöglega í landinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
AK-72
Tenglar
Borgarahreyfingin
Kvikmyndir og því tengt
- Heimildarmyndaklúbburinn Hómer Félagskapur sem hittist til að drekka í sig fróðleik og bjór á þriggja vikna fresti
Project 100
- Heimasíða Project 100 Viltu vera einn af 100?
Bloggvinir
- don
- soleys
- tharfagreinir
- sigurgeirorri
- neddi
- smali
- omnis
- nanna
- baldurkr
- siggi-hrellir
- gorgeir
- paul
- geimveran
- skari60
- semaspeaks
- vest1
- thj41
- gudrunlilja
- zeriaph
- siggisig
- gudbjorng
- svatli
- athena
- ace
- ragnarb
- einarolafsson
- amadeus
- brell
- thorsaari
- tbs
- vilhjalmurarnason
- patent
- jennystefania
- drum
- folkerfifl
- larahanna
- ragnar73
- hildurhelgas
- ladyelin
- sigurduringi
- sij
- hedinnb
- valgeirskagfjord
- hehau
- baldvinj
- jonarnarson
- olinathorv
- saemi7
- agustg
- ingaragna
- liljaskaft
- astajonsdottir
- reisubokkristinar
- lehamzdr
- sparki
- malacai
- leifur
- evaice
- gus
- tryggvigunnarhansen
- kjarri
- vistarband
- fun
- einari
- spurs
- annaeinars
- gattin
- kaffistofuumraedan
- launafolk
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flott grein, sammála hverju orði.
Jesús Kristur (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 20:51
hörmungarmál
Hólmdís Hjartardóttir, 3.7.2008 kl. 21:17
Mæltu manna heilastur!
Haraldur Bjarnason, 3.7.2008 kl. 21:55
Takk fyrir og svo hvet ég fólk til að taka þátt í mótmælunum á morgun og láta íljós óánægju sína.
AK-72, 3.7.2008 kl. 22:01
Frábær pistill!
Valsól (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 23:16
Enn fjallar AK-72 um stóra nasistasamsærið á Íslandi.
Johnny Rebel (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 00:21
Þetta mál fer ekki vel í mann svo vægt sé til orða tekið. Takk fyrir pistilinn.
Haukur Nikulásson, 4.7.2008 kl. 07:11
Enn og aftur skammast ég mín fyrir að vera Íslendingur, vona að enginn fatti hvað við erum hjartalaus því það gæti skemmt ímynd okkar sem æðislegasta og frábærasta og bestasta þjóð í heimi :S
Sóley Björk Stefánsdóttir, 4.7.2008 kl. 11:47
Mótmælafundur fyrir utan Dómsmálaráðuneytið kl.12.00 á hádegi á morgun laugardaginn 5 júní. Látið það berast!
Hördur Torfason (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 16:25
Ég er búin að lesa nokkur blogg í dag og hef ekki heyrt einn einasta mann verja dómsmálaráðuneitið. Mér þykir það tíðindi. Meira segja menn sem ég þóttist handviss um að væru Sjálfstæðismenn hafa ekki tekið upp hanskan fyrir Björn Bjarnason og hans föruneitii í þessu máli.
Mér þykir þetta góður pistill hjá þér en gaman væri samt að heyra sjónamið stjórnvaldablókanna í þessu máli. Heyra hvort þeir viðurkenni að um mistök hafi verið að ræða eða breiða sínu baki yfir þetta vandræðamál og treysta á að gullfiskaminni íslensku þjóðarinnar bregðist ekki og þetta mál verður gleymt og grafið eftir nokkur misseri.
Brynjar Jóhannsson, 4.7.2008 kl. 17:28
Brynjar: Mér sýnist að ætlunin sé að neita alfarið að mistök hafi verið um að ræða, heldur eigi að fara út í að halda sig við að "við ákváðum að fara eftir lögum sem ekki var nauðsyn að beita því við nenntum ekki að vinna vinnuna okkar"-röksemd sem er orðuð á mun loðnari máli. Dyflinnar-samningurinn er ekki einhver heilagur lagabókstafur heldur samkomulag sem bíður upp á það að viðkomandi lönd geta sjálf úrskurðað. Þar sem það er auðveldara að senda manninn út úr landi og láta aðra sjá um þetta heldur en að þurfa að hafa fyrir því að afla sér upplýsinga sem ekki er hægt að finna í símaskránni, þá er það frekar valið án tillits til aðstæðna, splundra fjölskyldunni í stað þess að finna þá lausn þar sem það er ekki gert og valda fólki í erfiðum aðstæðum sársauka án þess að skeyta neitt um mannúð. Í mínum augum er þetta ákveðið form af illsku, illsku sem myndast í kerfi fjandsamlegrar skriffinnsku þar sem meira er skeytt um hvort eyðublað 12439/c sé rétt útfyllt, frekar en hvort það eigi að sýna mannúð og bjarga e.t.v. mannslífi.
Svo langar mig að benda á athyglisvert blogg hér.
AK-72, 4.7.2008 kl. 18:01
AK-72 'eg er th'er hjartanlega samm'ala.
Fyrirgefdu 'eg er ekki med r'ett lyklabord, en 'eg vona ad that komist til skila hvad 'eg meina.
Soldis
Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 7.7.2008 kl. 13:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.