Bera meðlimir þjóðkirkjunnar ábyrgð á barnaníði kaþólskra presta?

Þessi spurning er stór en eftir að hafa skoðað nokkrar bloggfærslur og röksemdir í gær ásamt því að líta yfir eldri punkta í umræðum, þá er svarið tvímálalaust já miðað við ákveðna rökfræði. Vissulega bera meðlimir þjóðkirkjunnar ábyrgð á barnaníði kaþólskra presta. Þeir eru nefnilega allir saman kristnir.

En hvað var það sem fær mig til að komast að þessari niðurstöðu og hversvegna nú? Jú, í gær birtust fréttir af því að múslimar á Íslandi væru orðnir þreyttir á seinagangi borgaryfirvalda og trega til að úthluta þeim lóð undir mosku og menningarmiðstöð. Borgayrifrvöld hafa drattast með þetta í 9 ár á meðan öðrum trúarhópum hefur verið úthlutuð lóð auk þess sem margur verktakinn hefur fengið að stökkva framfyrir í biðröðinni ásamt því að ekki er hægt annað en að sjá að þetta sé brot á góðum stjórnsýsluháttum.

En það eru viðbrögðin við þessari frétt sem og öðrum málum er tengjast múslimum á Íslandi, sem vekja mesta umhugsunina. Nokkrir sem margir hverjir eru "sannkristnir" og með sömu rpkfærslurnar, hafa geyst fram á ritvöllinn, og eiga ekki orð yfir frekju múslima að vilja fá lóð fyrir bænahús líkt og aðrir trúarhópar hér á landi hafa fengið. Enda er það nú ekki annað en dæmalaus frekja og óþolinmæði að bíða í 9 ár og fara þá að ókyrrast eftir svari og hvað þá að telja sig jafna frammi fyrir lögum og stjórnarskrá landsins. Lásu þessir freku múslimar ekki það fína letur í stjórnarskránni að allir væru jafnir fyrir lögum óháð trú nema ef þeir væru múslimar. Reyndar gæti veirð að það hafi verið eitthvað óljóst enda var búið að krota ofan í orðið gyðingar í upprunulegu útgáfunni sem var hömruð saman fyrir byrjun seinni heimstyrjaldarinnar.

En það er fleira sem þessir ofurhneyksluðu aðilar hafa út á moskur múslima að setja, því múslimar hér á landi er gert það til höfðus að sæta ábyrgð fyrir öll verk trúbræða sinna í Sádi-Arabíu sem hneigjast til öfga-útgáfu trúarinnar sem kallast Wahab-ismi, sem er nett form af fasisma með trúarlegu yfirbragði og ofstæki. Að sjálfsögðu eru þessir einsaklingar svo vel að sér í trúarheimi Íslams og vel lesnir af heimasíðum sem í gamla daga hefðu yfirleitt fjallað um vonsku gyðinga og alheimssamsæri Zionista gegn gildum þýsku þjóðarinar, að þeir færa sífellt sönnur fyrir því að allir múslimar hugsi eins og hegði sér eins og þessir Wahabistar.Þessi 1,6 milljarður manna sem aðhyllist Íslam er víst klónaher, hugsar eins og hagar sér eins og versta afbrigði trúarinnar.

Sumir ganga svo langt í áhyggjum sínum af kvenkúgun Íslams að þeir hringja heim í systur formanns félags múslima á Íslandi og heimta að fá að vita hvort hún sé neydd af bróður sínum til að vera með höfuðklút og hvort bróðir hennar hafi hætt að tala við hana eftir barneign með íslenskum manni.. Þar sem þessi múslimska kona neitaði að svara spurningum um sitt einkalíf frá ókunnugum samborgara sem var uppfullur af heilögum anda eða Kristsins vodka, þá hlaut þetta að vera satt. Reyndar kom á óvart að viðkomandi einstaklingur skuli ekki hafa haft orð á því að þessi múslimi væri að vanvirða vestræn gildi með því að svara ekki ókunnugu fólki þegar það kemur með beinar spuringar um einka- og fjölskyldulíf þess. Get þó huggað þennan einstakling með því að segja að samkvæmt minni vitneskju þá  þarf eiginkona Salmans ekki að ganga með höfuðklút,hún m.a.s. hneppir frá blússunni sinni og sé bara hreinlega nokkuð frjálslynd í öllu fasi.

En snúum okkur nú aðeins aftur að þessu með moskuna, því þar er nú ein gullna og vel ígrundaða röksemdin í málflutningi þessa æsta og hrædda "sannkristna" fólks. Moskur eru nefnilega djöfullegar byggingar þar sem múslimar hittast til að skipuleggja samsæri og hryðjuverk alls staðar í heiminum eða eins og ein sannkristin mær segir í ótta sínum:"Nú þegar eru um þúsund múslimar í landinu og þeim fjölgar dag frá degi. Ef moska verður byggð á Íslandi mun þeim fjölga til mikilla muna.Moskan er ekki bænahús nema að nafninu til.  Hún er félagsheimili þeirra sem leggja á ráðin og skipuleggja hryðjuverk. Yfirlýst markmið múslima eru heimsyfirráð. Útrýming á öllu sem samræmist ekki þeirra eigin gildum og trú." Reyndar kæmi mér ekkert á óvart þó að þessi kenni múslimum um allt, m.a. það að henni var gert að hætta að blogga við fréttir og er það alveg óskiljanlegt ef færslur hennar hafa verið jafn uppfullar af heilögum sannleik sem hún ritar þarna í kappi við læriföður sinn Skúla Skúlason sem ásamt tveimur nýnasistabloggurum, hefur þann heiður að hafa þurft að hætta að upplýsa okkur hér á Moggablogginu um hætturnar af óæðri trúarbrögðum og kynþáttum. 

Svo má ekki gleyma hvað múslimar hér á landi,eru hrikalega óumbyrðarlyndir og miklir skoðanakúgarar eins og Wahab-istarnir í Sádi-Arabíu. Ég meina, come on sko, þeir leyfa þessu "sannkristna" fólki að að vera með þvílíkan óhróður um sig á hverjum degi og stunda  skoðanakúgun með því að svara nær því aldrei þessum svæsnu árásum í sinn garð, bæði um þá alla sem og árásir á nafngreinda forsvarmsenn þeirra hér á landi. Svo eru þeir svo óumburðarlyndir að þeir iðka sína trú án þess að vera að troða henni inn á aðra, ólíkt mörgum af hinum "umburðarlyndu sannkristnu" mönnum hér á landi sem heimta að þróunarkenningin verði slegin af, sköpunarsaga Biblíunnar kennd sem sannleikur, fóstureyðingar(og líklegast getnaðarvarnir) bannaðar og að allt sé ritskoðað sem þeim þóknast ekki. Hvílíkt óumburðarlyndi og skoðanakúgun af hálfu múslima.

Þegar maður hefur lesið yfir svona stórkostlegar röksemdir fyrir því að múslimar eigi ekki að fá mosku hér á landi, þá getur maður ekki annað en tileinkað sér rökfræði þessa þegar kemur að öðru stórum trúarbrögðum eins og kristni. Nú hafa kaþólskir prestar gerst margoft sekir um barnaníð og má því örugglega gera að því skóna að Biblían segi þeim að ástunda þetta.. Kirkjurnar eru svo samkomustaður þar sem ákveðið er hvernig skal staðið að barnaníðinu og hugað að heimsyfirráðum í leiðinni. Þegar svo er tekið inn í jöfnuna aðkristnir hugsa allir eins og versti samnefnarinn og séu samábyrgir fyrir gjörðum sinna verstu trúbræðra, hvort sem það er öfgatrúarmenn í BNA á Biblíubeltinu eða í eða á leið í Hvíta húsið, eða barnaníðingar í prestsklæðum, þá er niðurstaðan við upphafs-spurningunni: einfalt já, meðlimir þjóðkirkjunnar bera ábyrgð á barnaníði kaþólskra presta.

QED(með rökfræði íslenskra, "sannkristinna" og annara múslimahatara)

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hafa einhver hugsanaflutningur átt sér stað milli okkar í morgun. Ég var einmitt að hlusta á fyrsta hlutann af eftirfarandi TAL-þætti: http://www.thisamericanlife.org/Radio_Episode.aspx?sched=1259

Íris (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 14:48

2 Smámynd: AK-72

Það gæti verið, Íris. Ég þarf að hlusta á þennan þátt við tækifæri og reyndar This American life yfirleitt, maður er búinn að heyra svo mikið lof um þá frá félaga okkar.

AK-72, 22.9.2008 kl. 16:08

3 identicon

Íslam er eitthvað sem allir réttsýnir menn með einhverja virðingu fyrir mannlegri reisn og frjálsri hugsun ættu að berjast gegn.

Íslam er ofbeldisafl í samfélagi manna.  Líkt og með ofbeldismennina finnast allta einhverjir kóarar sem reyna að sjá eitthvað gott í þeim og mega ekki heyra orði á þá hallað.  Það má ekki einu sinni gera grín að þeim.  Reiði þeirra er alltaf réttlát og allir aðrir eru bara með leiðindi til að pirra þá.

Það er til gnótt fólks sem gerir ekki mun á sannleiksást og fróun eigin sjálfs og rótar í rotþró íslamskra fræða í leit að perlum sem stolnar voru úr ritum annara trúarbragða til að gefa þeim fölan ljóma guðlegs neista.  Þetta fólk hvorki finnur dauninn né sér óhroðann í þrónni og tekur við fölskum perlum án skoðunar frá áburðardreifurum íslams og er tilbúið að láta smámuni eins og frjálsa hugsun, málfrelsi og mannréttindi í skiptum fyrir glerið.  Finni einhver fnykinn þá skal sá sami halda kjafti.  Ekki má særa tilfinningar múslimanna.  Ó, allt nema það!

marco (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 22:39

4 identicon

Svona er öll trú, krissar eru ekki að fatta að þeir eru nákvæmlega eins og múslímar sem vilja ekki kirkjur í sínum löndum.
Ég er ekki að taka hanskann upp fyrir íslam en kristni er örugglega það afl sem hefur flest líf á sinni samvisku.
Kóran er bara önnur útgáfa af biblíu... við getum fundið nákvæmlega sama ljótleika í báðum bókum.... þeir hafa sama guð og alles... það er eiginlega bara hin heilaga þrenning/það að jesú sé guð sem er að pirra algera ástarsameiningu.
Þeir hafa nákvæmlega sömu sköpunarsögu eða hér um bil... múslímar berjast líka gegn þróunarkenningu og alles.
Örfáir kuflar á öldum áður sem urðu að finna stað fyrir Sússa er eiginlega það sem hindrar að islam og kristni verði að kristlam

Bottom line er að ef múslímar mega ekki byggja mosku þá eiga kristnir ekki að fá að hafa kirkjur... þannig virkar dæmið

DoctorE (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 23:10

5 Smámynd: AK-72

Doctor E: Það er alveg satt hjá þér með það, ágæti doktor, að þetta er það sama. Bara spurningin um hvaða boðskap fólk les út úr hlutunum og flestallir eru þannig gerðir að þeir leita að því góða og eru ekki mikið að troða inn á aðra sínum viðhorfum ólíkt þessum sem eru síröflandi hatursfullt ofstæki sitt um hvað allir eru vondir sem tilheyra ákveðnum trúarbrögðum, líkt og undanfari þinn í svörum. Niðurstaða þín er alveg rétt og sammála henni um að jafnt skuli yfir alla gana, annað er óréttlæti og brot á öllum þessu sem við köllum vestræn gildi.

Svo er það nú hann marco sem skriðiið hefur upp úr einhverri rotþrónni til að skaka sér um leið og hann lýsir því enn eina ferðina yfir hvað múslimar eru vondir og það megi ekki verja þá, jafnvel þó verið sé að vega að venjulegu, saklausu fólki. Vertu úti því ég nenni ekki að leika við þig, takk fyrir, og skakaðu þér frekar inn á blekpennum eða álíka hóprúnki ykkar múslimahatarana eða leitaðu þér hjálpar, þetta er áhyggjufullt þetta þráhyggjufulla hatur sem þú virðist haldinn. Seriously, ég meina það, ef þetta er svona mikið á sálarlífinu hjá þér að liggja yfir hverju einasta bloggi í von um að geta fengið að deila eiturspýjunni sem liggur úr iðrum þínum upp í munn, þá þarftu aðstoð. En ég nenni ekki að leika við þig og farðu frekar að tala við Skúla, hann hlustar á þig. Svo geturðu prófað eitthvað nýtt eins og t.d. að bögga einhvern af hinum öfgakristnu, þeir eru alltaf tilbúnir til þess að leika.

AK-72, 23.9.2008 kl. 00:29

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Ég þakka þér AK-72 fyrir um margt góða grein. Þú hefur lag á að segja hlutina umbúðalaust og það er mikill kostur.

Svanur Gísli Þorkelsson, 23.9.2008 kl. 01:48

7 identicon

"Svo geturðu prófað eitthvað nýtt eins og t.d. að bögga einhvern af hinum öfgakristnu".

Er ekki þó nokkuð góðar líkur á því að marco þyrfti þá að bögga sjálfan sig?

Bara smá hunch.

Jesús Kristur (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 09:18

8 identicon

AK-72.  Enn gerirðu engan greinarmun á íslam og múslimum.  Elsku kallinn minn.  Þetta eru tvö hugtök.  Annars vegar stefna og hins vegar fylgjendur.  Það að vera á móti t.d. kommúnisma er ekki það sama og að hata alla kommúnista.

Svo mættirðu laga munnsöfnuðinn.  Þá meina ég bæði innihald og framsetningu.  Innihaldið dæmir sig sjálft en framsetningin er allt of löng.  Það mætti halda að þú fengir borgað fyrir orðið.  Einfalt brigsl um slæma geðheilsu verður að heilum bókarkafla hjá þér.  Eitthvað sem hægt væri að segja í tveim línum.

Jesús.  Hefur einhver hinna "öfgakristnu" gert athugasemd við duknefni þitt og skopmyndina af Jesú sem þú notar.  Ef þú vildir nú nota skopmynd af múhameð í staðinn þá yrðu Ak-72 og Svanur fyrstir til að súpa hveljur og kalla þig rasista og illmenni. 

marco (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 10:21

9 identicon

"Hefur einhver hinna "öfgakristnu" gert athugasemd við duknefni þitt og skopmyndina af Jesú sem þú notar"

Jamm. Amk tveir þeirra hafa bannað comment frá mér fyrir þá eina sök að nota þetta.

Jesús Kristur (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 10:41

10 Smámynd: AK-72

Það ert þú marco, sem gerir feilinn. Fylgendurnir eru trúarbrögðin og nær því allir í helstu trúarbrögðum heims finna það góða í ritum þeirra á meðan fámennur hópur öfgamanna og illmenna notar þau til réttlætingar sinna illgjörða. Með því að halda því fram að það sem fólk trúir á sé fyrst og fremst illska, þá ertu að segja að fólkið sé illt allt saman. Bað ég þig annars ekki um að vera úti?.

AK-72, 23.9.2008 kl. 11:35

11 identicon

Því fer fjarri að aðeins illmenni fylgi illri stefnu.  Það er bara barnalegt að halda því fram.

Jesús.  Jæja, hafa tveir eða þrír lokað þig úti fyrir myndina.  Heldur þykir mér það lélegt hjá þeim. 

Nú ætlar félagi þinn og skoðanabróðir að henda mér út fyrir það að vera ósammála honum.  Honum hugnast best að jábræður og systur safnist saman og keppist um að vera sammála hér í blogginu.  Skoðanalegt Apartheid sem sé.  Undarleg afstaða fjölmenningarsinna svo ekki sé meira sagt. 

marco (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 12:20

12 Smámynd: AK-72

marco minn, er ég búinn að henda þér út? hefur þú ekki hingað til fengið að rífa kjaft hér? Aftur á móti þegar menn birtast með einhverja spýju og drullu sem fyrsta innlegg, og án þess að það komi efni pistilsins við neitt sérstaklega, þ.e. þessum fáránlegu árásum og fordómafullu upphrópunum í garð hóp fólks hér á landi sem dirfðist að vera ekki hresst með afgreiðslu mála sinna,  þá geturðu varla ætlast til þess að gestgjafinn sem þú treður þér inn til, sýni þér einhverja lotningu. Ef menn skrifa eins og menn þó þeir séu ósammála mér, þá segi ég þeim ekki að vera úti.

AK-72, 23.9.2008 kl. 12:41

13 identicon

Trúarbrögð eru ekki menning, þau eru ómenning og sundrungarafl í eðli sínu, þau krækja í lægstu mannlegu hvatir eins og sjálfselsku og sundrungu/hatur.
Munið að Sússi sjálfur á að hafa sagst koma með stríð en ekki frið, það getur ekki verið friður á meðan trúarbrögð eru við lýði, staðreynd.
Lesser evil is still evil, það breytir engu þó ekki sé gerð árás á hann Jesú hér að ofan fyrir aliasinn.... fyrir ekki svo löngu síðan hefði Jesú verið brenndur á báli eða eitthvað álíka fyrir þennan gjörning.
Kristni hefur bara þróast í að gera árásir á vísindi og menntun sem notabene múslímar eru líka byrjaðir að gera, við höfum líka séð kristna skjóta td lækna.... hvað eru kristnir og íslamistar að spá þegar þeir gera þessa hluti... þeir eru ekki að spá í guði, þeir eru að spá í sjálfum sér og væntanlegum flugmiða til paradísar... það eru trúarbrögð í hnotskurn.

Bottom line er að hér er trúfrelsi.. hér eiga allir að fá að dýrka sína súperkarla að vild, bönn eru bara leið að meira hatri og hefndum.

DoctorE (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 12:50

14 identicon

Þú hefur reynt að flæma mig út með ljótum munnsöfnuði og langdreginni ókurteisi og beinlínis sagt mér að vera úti. 

Kommon.  Múslimarnir sóttu um tröllaukna lóð fyrir tí metra há mosku í Öskjuhlíð eða Laugardal.  Þegar hún kemur ekki upp í hendurnar á þeim þá klaga þeir í ekki eina hldur tvær erlendar stofnanir a.m.k.  Svo kemur Salmann og segir að þeir hefðu sætt sig við miklu minna og annarsstaðar.  Tvöfeldnin er algjör.

marco (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 13:51

15 Smámynd: AK-72

Tröllaukan lóð? 4000 fm? Þetta er eins og nett stálgrindarhús eða 50x80m og þá á að eftir að koma mosku, menningarmiðstöð(sem er eins og safnaðarheimili) og bílastæðum fyrir á þessu. og það 10m hátt sem er nú ekki svakalega hátt eða á við 4 hæða, ef lofthæðin er ca. 2,5m. Það var svo fyrir nær því 9 árum sem þeir sóttu um og þeir hafa gefið eftir kröufm síðan. Ég tel að menn eigi fyllsta rétt til að sækja rétt sinn eða "klaga" eins og þú vilt kalla það. Æjá, það er víst þannig að múslimar eiga víst ekki réttindi í ykkar hugarheimi né á stjórnarskrá að gilda um það, gleymdi því.

AK-72, 23.9.2008 kl. 15:51

16 Smámynd: AK-72

Ace: bendi á það sem ég sagði með húsnæðið, að múslimar hér voru búnir að slá af kröfunum. En já, ég tel að það sé í finu lagi að gagnrýna öfgamenn hvort sem það eru Talibanar, bandarískir eða íslenskir evangelistar. AFtur á móti finnst mér þessi demonisering þar sem allir eru settir undir einn hatt alveg fáránleg, líkt og dæmið í greininni að ofan, þar sem m.a. "sannkristið fólk er að nota einhverja móðursýkisleg rök um hryðjuverk og samsæri um heimsyfirráð, út af moskubyggingu íslenskra múslima sem hefur verið hið mesta friðsemdarfólk. 

Það er reyndar eitt sem kemur mér á óvart, að það virðist engin kippa sér upp við né hafa eitthvað að athuga við, símtalið til systur Tamimis þar sem ókunnugur maður heimtar upplýsingar um hennar persónulega líf. En kannski þykir slík hegðun í góðu lagi í okkar samfélagi.

AK-72, 23.9.2008 kl. 16:01

17 identicon

Ak-72 hefur verið manna ötulastur að setja alla múslima undir einn hatt og oftlega reynir hann að troða þeim hatti á höfuð fólks sem hefur ekki sömu skoðanir og hann.

Doctor.  Guðleysi finnst mér fullkomlega valid afstaða þó að ég aðhyllist hana ekki.  Fullyrðingar þínar um að íslam og kristni séu svo gott sem einn og sami hluturinn eru rangar.  Margir ógeðslegir glæpir hafa verið framdir með kristindóm sem yfirskin.  Þó er ógerlegt að réttlæta þá með tilvísun í kenningar Krists eða með fordæmi hans í huga.  Íslam beinlínis skipar fyrir um margt sem við flest skilgreinum sem glæpi og illvirkin eru beinlínis dyggð.  Múhameð sýndi sjálfur með lífi sínu og fordæmi hvers er krafist af múslimum.

Þú kannast kannski við lag sem Haukur Morthens söng og viðkvæðið var: "Ávalt haf Jesú í verki með þér".  Þú hlýtur að viðurkenna að illvirkja er ekki að vænta frá fólki sem raunverulega lifir eftir þessu.    Sé textanum snúið upp á múhameð "spámann" þá eru talibanar ansi nálægt því að ná því að uppfylla skilyrðin.

marco (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 18:23

18 Smámynd: AK-72

Ace: við erum alveg sammála um öfgmaenn. Það væri annars áhugavert ef þú gætir póstað þessum svínsblóðs-link inn hér.

marco: Kóraninn, Talmúdinn og Biblían byggja á sömu hlutunum, sömu sögunum og það er ekkert mál að finna réttlætingar í orð Jesús eða Biblíunnar, til að réttlæta alla heimsins illsku. Í Biblíunni er einnig fyrirskipuð allskyns illska. Flestallir sem aðhyllast þessi trúarbrögð, er fólk sem leitar eftir þeim boðskap sem vietir þeim frið og segir þeim að elska náungann eins og sjálfan sig.

Svo er það nú þetta að ég sé að setja alla múslima undir einn hatt. Ég geri það ekki frekar en ég set alla kristna, gyðinga og annarar trúar. AFtur á móti þoli ég ekki þessar alhæfingar um að hinir eða þeissir sem tilheyra ákveðnum trúarbrögðum eða eru trúlausir, séu allt saman vont fólk eða trú þeirra sé alvond .

Við það bætist að það sem maður er að sjá í dag af hatursáróðri gegn múslimum, er einfaldlega farið að minna, meira en ískygggilega mikið á andgyðinga áróður nasismans og fasista í Evrópuf á fyrri hluta síðustu aldar. Svo er líka einnig komið þannig að fasisminn er að rísa upp aftur á Ítalíu í formi annars stjornarflokksins. Sá hefur haft einmitt á stefnu sinni að berja á músllimum, innflytjendum og sígaunum og fulltrúar hans hafa sagt opinberlega að fasismi sé misskilin stefna.

Sagan er að byrja að endurtaka sig og því miður er alltof mikið af fólki sem er tilbúið að endurtaka hana hér í Evrópu gegn "vonda minnihlutahópnum" hverju sinni.

AK-72, 23.9.2008 kl. 19:17

19 identicon

Ak.  Þetta er nú farið að hljóma eins og rírönn á ágætri snerru sem við áttum hér á síðunni þinni fyrir nokkru.  Það er kannski óþarfi að sýna hana alla í slómó aftur.  Fullyrðingar þínar um rættlætingu á glæpaverkum með tilvísun í kenningar og líf Jesú Krists eru jafn ósannar nú og áður og enn algerlega rakalausar.

marco (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 19:27

20 Smámynd: AK-72

Já, marco. Þetta er farið að verða rerun, en það er bull að það sé ekki hægt að réttlæta glæpaverk með tilvísanri í Jesús. Í gegnum söguna þá hafa mörg hundruð þúsund manns verið unninn miska í gegnum pyntingar, aftökur og morð í hans nafni. Hann hefur verið notaður til réttlætingar á ofsóknum gegn gyðingum af hálfu nasista, öfgakristnir í Bandaríkjunum fremja óhfæfurverk í hans nafni og vísa til hans í réttætingu fyrir verkjum sínum auk óhróðurs í garð samkynhneigðra og það má örugglega finna einhvern barnaníðing sem notar það sem réttlætingu að Jesús vildi að börnum væri nauðgað.

Ekki vera því með þessi barnalegu fullyrðingu um glæpaverk séu ekki réttlæt með tilvísun til Jesús, því hann er ekki barnanna bestur eða eins og hann segir sjálfur:

"(Matteus 10.34) Ætlið ekki, að ég sé kominn að færa frið á jörð. Ég kom ekki að færa frið, heldur sverð."

AK-72, 23.9.2008 kl. 19:43

21 identicon

Þessi tilvitnun réttlætir ekkert glæpaverk.  Menn hafa gert allan fjandann í nafni kristninnar, það hef ég áður sagt, en ekkert í kenningu krists eða líferni réttlætir það.  Þú beinlínis verður að koma með einhver dæmi máli þínu til stuðnings.  Annars er þetta bara eitthvað snakk.  Með múhameð er allt önnur saga.

marco (IP-tala skráð) 23.9.2008 kl. 20:20

22 Smámynd: Neddi

Hver er munurinn á því að Múhammeð segi einhverjum að fara og drepa mann eða að Jesú segi enhverjum að fara og drepa mann?

Neddi, 23.9.2008 kl. 21:13

23 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Neddi, afsakðu; Hvar segir Kristur einhverjum að drepa??? Ertu ekki að misskilja þetta eitthvað?

Svanur Gísli Þorkelsson, 23.9.2008 kl. 21:17

24 Smámynd: AK-72

Held að ég fatti hvað Neddi er að fara, þ.e. hver er munurinn á því að drepa í nafni múhammeðs og jesús? Verst að sumir virðast svo aldrei hafa heyrt um krossferðinrar, spænska rannnsóknarréttinn, nornafárið, Ku Klux Klan, Army of God, Lord's army í Úganda, hvernig nasistar notuðu dauðdaga Krists sem réttlætingu á því að það væri í lagi að drepa gyðinga o.fl. Nei, það er víst svo miklu saklasuara heldur en bókstafir sem brot af trúarhópi sem er hátt í 2 milljarðar, sjá út úr honum. Söngurinn er eins og venjulega, allir í þeim hóp eru eins og verstu samnefnararnir og þá skal níða þá alla.

AK-72, 23.9.2008 kl. 21:30

25 identicon

Ak.  Þú endurtekur alltaf það sama.  Það sem ég er að reyna segja er að stefnan skiptir máli.  Þ.e. eru glæpir framdir í nafni stefnu sem boðar þé ekki eð eru þeir framkvæmd stefnu?  Á þessu er gríðarlegur munur ef menn eru að hugsa um hvort að stefnan er glæpsamleg eða ekki.

marco (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 12:22

26 identicon

"hver er munurinn á því að drepa í nafni múhammeðs og jesús?" - Munurinn er sá að Jesús hvatti aldrei til morðs eða ofbeldi í nafni Guðs - Múhameð gerði það!

"Verst að sumir virðast svo aldrei hafa heyrt um krossferðinrar, spænska rannnsóknarréttinn, nornafárið, Ku Klux Klan, Army of God, Lord's army í Úganda,"- Nornafárið snérist um nornir sem voru ekki til; hryðjuverkamenn eru ÞAÐ! Nornaveiðarnar í Salem stóðu yfir í nokkrar vikur! Hið heilaga stríð sem múslímar eru búnir að leggja yfir kristna/gyðingar/trúlausa er búið að standa yfir í 10 ár! Ku Klux Klan snýst/snérist aðallega um kynþáttamismunun en ekki trúarbrögð.

"hvernig nasistar notuðu dauðdaga Krists sem réttlætingu á því að það væri í lagi að drepa gyðinga o.fl." - Hvenær í ósköpunum notuðu nasistarnir dauðadags Krists til að réttlæta morðin á gyðingunum? (Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef heyrt þetta.)

"Nei, það er víst svo miklu saklasuara heldur en bókstafir sem brot af trúarhópi sem er hátt í 2 milljarðar, sjá út úr honum. Söngurinn er eins og venjulega, allir í þeim hóp eru eins og verstu samnefnararnir og þá skal níða þá alla." - Ertu þú ekki að gera nákvæmlega það sama og þú ert að gagnrýna aðra fyrir að gera?

Brynjar (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AK-72

Höfundur

AK-72
AK-72
Með óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...1212_913482
  • ...ner1_568492
  • ...rad-banner1
  • Screenshot

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 123174

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband