Að stela stórt

Þegar litið er yfir einkavinavæðngarferli ríkistjórnar Davíðs Oddsonar og Halldórs Ásgrímssonar, á ÍAV, þá sumblar manni af siðblindunni og spillingunni sem réð þar för, sérstaklega þar sem hagsmunum almennings var fórnað svo innvígðir og innmuraðir gætu stolið eigum almennings. Stór orð, já, það veit ég en þegar maður skoðar eftirfarandi og hugleiðir út frá því, þá fyllist maður reiði í garð þeirra sem að þessu stóðu.

  •   Fulltrúi Framsóknarflokksins, Jón Sveinsson, í einkavæðingarnefnd, sat í stjórn Íslenskra Aðalverktaka þar sem hann vann naíð með forstjóra og öðrum stjórnendum að útboðinu. Einnig vann lögmannstofa hans fyrir ÍAV og vinnur enn fyrir hina nýju eigendur fyrirtækisins og átti þar með Jón mikilla viðsiptalegra hagsmuna að gæta.
  • Forstjóri ÍAV, Stefán Friðfinnson, var samkvæmt lögum fyrirtækisins, sá eni sem mátti samþykkja hvaða trúnaðarupplýsingar fengjust uppgefnar. 
  • Stefán Friðfinnsson var í forsvari fyrir EAV sem keypti fyrirtækið. Það fyrirtæki samanstóð af nefndum Stefáni ásamt öðrum stjórnendum Íslenskra Aðalverktaka sem höfðu aðgang að trúnaðaruppýsingum.
  • Endurskoðandi ÍAV,Benóný T. Eggertsson, veitti fyrirtækinu EAV, ráðgjöf við tilboðsgerð. Eftir kaupin var hann einnig ráðin sem endurskoðandi fyrir hina nýju eigendur og átti þvi greinlegra viðskiptalegra hagsmuna að gæta.
  • Aðrir bjóðendur í hlut ríkisins fengu vísvítandi uppgefnar rangar upplýsingar í útboðslýsingu, þ.e.a.s. þær upplýsingar sem Stefán forstjóri ákvað að þeir fengju að vita. Í þeirri lýsingu sem Jón Sveinsson kynnti fyrir mönnum á kynningarfundi, var dregin upp mjög dökk mynd af fyrirtækinu og að það væri mörg hundruð milljón króna tap af rekstri fyrirtækisins. Eignir voru vísvítandi vanmetnar.
  • Landsbankinn sem sá um tilboðsgerð, reyndist vanhæfur vegna þess að hann tengdist tveimur tilboðum náið. Annarsvegar ætlaði hann að fjármagna kaup Stefáns forstjóra og var einnig hluthafi í eignharhaldsfélagi með ÍAV. Einnig var fulltrúi þess tengdur Jarðborunum sem átti hæsta tilboðið.
  • Ekki tókst að sýna fram á að hæsta tilboðið frá Jarðborunum hefði verið ógilt á neinn hátt, en samt var gengið að tilboði  sem var talsvert lægra eða tveir milljarðar.Er ekki með töluna á tilboði Jarðborana akkúrat nú en það má búast við að íslenska ríkið og almenningur hafi þarna orðið af nokkur hundruð milljónum hið minnsta.
  • Eitt af því sem var vanmetið vívítandi af hálfu endurskoðenda og forstjóra sem veittu upplýsingar, var Blikastaðarland. Eftur að sala gekk í gegn þá var það endurverðmetið upp á þrjá milljarða. Eigendur greiddu sér þá út arð upp á 2,3 milljarð og má segja að þeir hafi fengið fyrirtækið gefins.
  • Blikastaðarland var svo í framhaldi selt í síðasta janúar og samkvæmt fréttum er söluvermætði einhvers staðar á bilinu 15-20 milljarðar.
  • Einnig hefur því verið fleygt fram(man ekki hvort það kom fram í fréttum þó) að forstjóri og stjórnendur ÍAV hafi látið fyrirtækið kaupa mikið magn af vinnuvélum sem ríkið greiddi en ekki sýnt það sem eignir í tilboðinu. Má þar reikna með að það hafi verið nokkur hundruð milljónir sem íslenskir skattborgarar hafi verið hlunnfarnir um þar, ef rétt reynist.
  • Eftir á eftir að koma í ljós hvort ríkið sé skaðabótaskylt vegna þess að kaupin reyndust ólögleg og ef Jarðboranir fara í mál, þá má reikna með að íslenskir skattborgarar þurfi að blæða meir.
Ef menn setja svo tölurnar í samhengi þá virðist almenningur hafa orðið af töluverðum peningum. Í það minnsta um fjóra milljarða en ef við tökum svo fullt söluverðmæti Blikastaðalands inn í þá er tap íslensk almennings einhvers staðar á bílinu 18-24 milljarðar að mínu mati og það án þess að málaferli af hálfu Jarðborana séu tekin inn í myndina. Einnig má reikna með tapi vegna dómsmála og annara fjárútláta í tengslum við þetta. Til samanburðar má nefna að útgjöld íslenska ríkisins til löggæslu og dómsmála er um 24 milljarðar og því þarna miklar fjárhæðir sem skipta máli fyrir samfélagið.

Einnig kom Halldór Ásgrímsson víst óeðlilega að málum með afskiptum af störfum nefndarinnar en þegar litð er á þetta í heild, þá er ýmislegt þarna sem stingur í augun. Miðað við þetta þá hafa verið framinn þarna skjalafals í formi vísvítandi rangrar upplýsingargjafar, samsæri um að hafa fé og eignir af íslenska ríkinu með vitund opinberra embættismanna og fjársvikamylla sett af stað. Allt þetta er refsivert samvkvæmt lögum um opinberra starfsmenn, hegningarlög og örugglega einhverjum fleirum lögum sem tengjast viðskiptum. Réttast væri að þar sem salan er ólögmæt að kaupin gengi til baka miðað við þá glæpsamlegu þætti sem þarna um ræðir.

Því miður þá virðist það vera svo að þegar menn fremja svona umfangsmikil fjársvik líkt og virðast hafa farið fram hér, innvígðir og innmúraðir í rétta stjórnmálaflokka og með velþóknun stjórnarherra, þá aðhefst lögregla ekki neitt líkt og hér, eða setur annað hvort einn mann í málið og klúðrar því(viljandi?) líkt og með olíumsamráðsmenn. En þegar kemur að fyrirtæki sem forsætisráðherra innvígðra og innmúraðra hatast við, þá er öllu tjaldað til hjá lögreglu og mörg hundruð milljónum eytt í handónýtt og tilgangslaust mál.

En já, svona er það víst á Íslandi. Ef þú mótmælir þá ræðst lögreglan á þig með skildum og piparúða, öskrandi GAS-GAS-GAS eins og vanvitar, og ef þú rænir klinki úr banka, þá er allt lið lögreglu sent á efitr þér með sérsveitum og þyrlum. Ef þú aftur á móti stelur stórt frá almenningi í formi einkavinavæðingar með svikum og prettum, þá gerir lögregla né þeir sem eiga að gæta að hagsmunum almeninings ekki neitt, heldur bjóða þér í næstu silkihúfuveislu með fríu kampavíni og stökkva þér til varnar svo þú getir notið þýfisins um aldur og ævi.

Ef menn vilja skoða þessi mál betur þá bendi ég á ágæta umfjöllun 24 stunda um málið sem og Fréttablaðsins fyrri hluta desember 2006. 

 

 

 


mbl.is Sala á ÍAV úrskurðuð ólögmæt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þjóðin er sátt við þetta, hún kýs þetta fólk aftur á þing.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 13.5.2008 kl. 21:42

2 Smámynd: corvus corax

Þetta eru auðvitað ekkert annað en glæpamenn sem fara með almannaeigur eins og þeir eigi þær einir og gera það sem þeim sýnist við þær. Þessir glæpamenn eru búnir að gefa vinum sínum þau opinberu fyrirtæki sem einhver almennileg arðsemi er í og sauðsvartur pöpullinn má svo halda áfram að borga með vandræðafyrirtækjunum áfram. Í öllum almennilegum löndum með nútíma siðferði væri búið að negla þessa drullusokka og setja þá inn fyrir lífstíð ef ekki eitthvað verra (eða betra fyrir almenning). Við horfum upp á svona stórþjófnaði í ríkjum sem búa við einræði þar sem einræðisherrarnir og þeirra nánustu sanka að sér almannafé og koma undan á leynda bankareikninga í öðrum löndum. Hvað ætli þessir menn eigi orðið á leyndum erlendum bankareikningum sem þeir hafa fengið greitt í mútur og stolið frá þjóðinni. Og ríkisstjórnin með Ceausecu Oddsson og Marcos Ásgrímsson í fararbroddi er sú spilltasta sem um getur í sögu þjóðarinnar. Og svo bættu forystusauðirnir Ceausecu og Marcos gráu ofan á svart með því að fylkja liði með innrásarhernum í Írak upp á sitt eindæmi án þess að spyrja kóng eða prest eins og Ísland og íslenska þjóðin væri þeirra einkaeign þvert ofan í ákvæði stjórnarskrárinnar um að Ísland megi aldrei fara með her á hendur öðrum þjóðum. Af gefnu tilefni ...hvernig er aftur skilgreiningin á hugtakinu föðurlandssvikari?

corvus corax, 14.5.2008 kl. 15:36

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Skv. því sem þú segir er hér um að ræða svipuð fjársvik og þegar stærstur hluti varnarliðseignanna var seldur ættingjum og vildarvinum fjármálaráðherra á hálfvirði. Þar er um að ræða 15-20 milljarða dæmi sem þarf að skoða betur.

Haukur Nikulásson, 14.5.2008 kl. 18:09

4 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Davíð og Halldór eru ekkert annað en auðvirðilegir föðurlandssvikararar og skömm mín á þessu hyski er mikil, smán þeirra verður lengi haldið á lofti.

Georg P Sveinbjörnsson, 14.5.2008 kl. 18:18

5 identicon

Megi Davíð og halldór hafa ævilanga skömm fyrir. Það er furða að ekki skuli fara af stað lögreglurannsókn, því ekki njóta þessir menn friðhelgi lengur.

Valsól (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AK-72

Höfundur

AK-72
AK-72
Með óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...1212_913482
  • ...ner1_568492
  • ...rad-banner1
  • Screenshot

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 123141

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband