Aðstoðuðu þingmenn Samfylkingarinnar við handtökuna?

Einhvern veginn er það nú lýsandi fyrir samfélagið, að maður sem klifraði upp á þak og festi þar upp fána sem er lýsandi fyrir stefnu Alþingis síðustu 10-17 árin eða svo, þ.e. að setja hagsmuni fyrirtækja, auðmanna, bankamanna og fjárfesta framar hagsmunum almennings og þjóðar, skuli vera handtekinn. Á sama tíma hefur ekki einn einasti af þeim óþokkum sem settu landið á hausinn verið hnepptur í varðhald eða séð til þess að þeir séu teknir úr umferð á einhvern hatt svo þeir geti ekki haldið áfram að skaða þjóðina. Þeir sitja enn í bönkunum glottandi, þeir fljúga enn á milli landa og kaupa eignir úr þrotabúum fyrirtkja sinna o eru líklegast komnir í það að semja um að kaupa bankanna og skurtðstofur ódýrt þessa daganna. Enginn og það eru átta vikur liðnar.

 En eru þingmenn að hafa áhyggjur af þeim eða grípa til aðgerða? Nei, ef miðað er við þessa lýsingu af handtökunni sem ég set hér inn frá Maurildi, þá er Þjóðaróvinur nr. 1 maðurinn sem er orðinn að hálfgerðri þjóðhetju í dag fyrir þennan flotta gjörning, í augum þingmanna Samfylkingarinnar, framar auðmönnunum og bankamönnunum sem ganga enn lausir og í störfum sínum innan bankanna. Ef fánaflaggarinn hefði heitið Björgúlfur, Hannes, Jón 'Asgeir eða verið í toppstöðu innan "gömlu og nýju" bankanna, þá væru þingmennirnir líklegast með fánahyllingu fyirr framan skrifstofuna hans.

"

G l ó ð h e i t a r - f r é t t i r !


Haukur heimspekinemi dundaði sér við þann táknræna gjörning á dögunum að hengja Bónusfána á Alþingishúsið. Í kvöld beið hann niðurlútur með félögum úr Háskólanum eftir því að fá að hefja skoðunarferð um það sama hús í vísindaferð. Þar sem hópurinn stóð á snakki við Ágúst Ólaf og aðra broddborgara rak þjónustulundaður öryggisvörður glyrnurnar í Hauk.

Uppi varð fótur og fit. Háskólanemendunum var vísað á dyr í snarhasti. Þarna fengju þeir sannarlega ekki að laumast um gólf.

Í staðinn bauð Samfylkingin þeim á skrifstofur sínar. Haukur og félagar nutu þar lífsins og höfðu ekki minnsta grun um að á meðan Samfylkingarmenn gerðu við þá gælur voru Svartstakkarnir á leið á staðinn.

Samfylkingarmenn létu á engu bera. En þegar Haukur ætlaði að ganga út af skrifstofunum stökk löggan á hann og handtók hann.

Bónusmaðurinn er sumsé kominn í djeilið.

Og er nú ekki lýsandi fyrir hlut Samfylkingar á þessum síðustu tímum að bjóðast brosandi til að umbera lýðinn sem ekki er velkominn á hið háa Alþingi og sitja síðan aðgerðarlaus hjá þegar yfirvaldið kemur fram vilja sínum við hann?"

 


mbl.is Bónusfánamaður handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru greinilega skilaboð til mótmælenda. Ekkert hefur hindrað fangelsisyfirvöld í því að boða Hauk til afplánunar á löglegan hátt svo þetta er augljóslega ekkert nema örvæntingarfull tilraun til að bæla niður beinar aðgerðir og gjörninga sem vekja athygli og spurningar.

Við munum ganga að lögreglustöðinni við Hlemm til að mótmæla þessum vinnubrögðum eftir fundinn á Austurvelli nú á eftir.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 14:00

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Samfó er að deyja.. hægt og örugglega.. 

Óskar Þorkelsson, 22.11.2008 kl. 16:40

3 identicon

Þetta minnir á Júdas sem sveik Jesús.
Samfylkingin ætlar greinilega að svíkja þjóðina í hendur glæpaklíkunnar sem setti landið á hausinn.
 

Jon R (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 19:33

4 identicon

Samfylkingin missir fylgi með hverjum degi sem líður,hún ber ábyrð á þessari ríkisstjón,heldur vendar hendi yfir seðlabankstjór,fjámálaeftirliti,auðmönnum sem skuldsettu þjóðina svo hún má allveg deyja út.

Hafþór (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 22:19

5 identicon

Ef að maðurinn hefur sannarlega ekki verið boðaður í afplánun með löglegum fyrirvara, er þetta ólögleg frelsissvipting.  Þingmenn Samfylkingarinnar eru því eftir þessu að dæma samsekir um mannrán og ætti að kæra þá og yfirmenn lögreglunnar fyrir sinn hlut í málinu.

Sobbi (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 00:39

6 Smámynd: molta

það sýnir svo geldingu lýðræðisins, að ef kosið væri í dag (skv frétt mbl) - þá héldu samfylkið og sjálfgæðið meirihluta sínum og myndu hreykja sér af "endurnýjuðu umboði" og "miklu trausti"

molta, 23.11.2008 kl. 07:47

7 identicon

baldur mcqueen sagði þetta

 Ef "skríllinn" stæði fyrir mótmælum alla daga ársins og skemmdi rúður fyrir fjórar milljónir (4.000.000 kr.) hvern einasta dag, tæki það 700 ár að valda viðlíka fjárhagsspjöllum og stjórnendur Íslands hafa valdið með vanrækslu og kæruleysi síðustu ára.

Með öðrum orðum, það tæki skrílinn tvö hundruð fimmtíu og fimm þúsund og fimm hundruð daga að valda þjóðinni jafn miklum skaða og fulltrúar hennar hafa þegar gert

og isg er bara með skæting við fólkið sem kaus flokkinn

Tryggvi (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AK-72

Höfundur

AK-72
AK-72
Með óþrjótandi áhuga á kvikmyndum, sögu og stjórnmálum.Telur sig hafa fullt frelsi til að hrósa og gagnrýna hvern sem er og hvenær sem er.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...1212_913482
  • ...ner1_568492
  • ...rad-banner1
  • Screenshot

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 123091

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband